Ný sumargjöf - 01.01.1859, Page 36
36
SJÖ SOFENDUR.
pegar kristileg kyrkja var ofsókt á stjórnarárum Desí-
usar, voru í Efesusborg sjö menn, er hjetu: Maximíanus.
Malkus, Marsíanus, Díonysíus, Johannes, Scrapíon, Kon-
stantínus. Allir sjö voru þeir þjónustumenn keisarans.
allir sjö voru þeir kristnir og vildu heldur láta lífiö
enn færa heiðnum goðum fórnir. En með því þeir
eigi höfðu verið uppaldir til karlmennsku, voru þeir
hræddir við pyndingar. og hjeldu að þeir ekki þyrftu
að leita píslardauða, sátu þeir því jafnan heiina og hvöttu
hver annan til föstu og bænahalds. En allt fyrir það
komu svikarar upp um þá og ákærðu þá hjá keisar-
anum. Voru þá gerð boð eptir þeim og varð sannað.
að þeir væru kristnir; en af því þeir voru ungir að
aldri og tignir menn leyfði Desius þeim að fara heim
aptur. svo að þeir gætu sjeð að sjer. meðan hann var
fjærverandi í öðru skattlandi.
En hinir sjö menn notuðu sjer þenna frest á aðra
leið. J>eir skiptu öllum eigum sínum milli fátæklinga
og flýðu síðan útá eyðimörk til ijallsins Selíon og leituðu
sjer skjóls í helliskútum þess og klettaskorum. Malkus,
sem var vitur maður og hugdjarfur. tókst öðruhverju á
hendur að fara til borgarinnar í förumanns búningi til
þess að kaupa vistir og komast fyrir, hvað við bæri.
Óðara enn Desíus var heim kominn úr leiðangri sínum.
stefndi hann hinum sjö unglingum á sinn fund. En þá
fundust þeir hvergi. Varð keisarinn þá afarreiður ljet