Ný sumargjöf - 01.01.1859, Side 40
40
„unglingur bessi hei'ur víst fundið jarðfólgið fje frá
öldum hinna fomu keisara. En þegar Malkus heyrði
keisarann ncfndan og skildi ekki orð þeirra. — því málið
hafði breytzt mjög á svo mörgum öldum — hjelt þann
þeir mundu ætla að ofurselja sig keisaranum og mundi
hafa flöið, ef hann hefði þorað; beiddi hann þá að eiga
brauðið og sleppa sjer. En því ákafar sem hann beiddi,
því tortryggnara varð fólkið. þ>að hjelt honum föstum
og sagði: „I>ú hefur fundið fje, komdu og sýndu okkur
það, við skulum skipta því ráðvandlega á milli okkar
og enginn annar skal verða þess áskynja. En viljirðu
það ekki, þá skaltu ekki njóta auðæfanna í friði.“ Stóð
Malkus þar skjálfandi og kom engu orði upp fyrir
nndrun. Brá þá fólkið snæri um háls honum og
dró hann til torgs eins. Flaug fregnin hvervetna, að
ungur útlendingur hefði fundið geysimikinn fjársjóð.
|>yrptist saman rnesti manngrúi og skimaði Malkus f
kringum sig í mannþrönginni. því hann bjóst við, að
einhverjir vandamenn sínir mundu koma, eða einhver,
sem gæti borið honum vitni. Varð hann sem ringlaður
og ljet sem hálfviti, er hann sá sig umkringdann einsog
af nýum heirni, og þekkti engan mann. Loksins spurðu
þeir Martínus biskup og Antípater hershöfðingi tíðindi
þessi; voru þeir þá nýkomnir í borgina. Skipuðu
þeir borgarmönnum að sækja unglinginn og peningana.
þegar Malkus sá að farið var með hann til kyrkju,
hjelt hann að keisarinn væri þar fyrir. Martínus og
Antípatcr skoðuðu peningana vandlega og fjekk það
þeim mikillar undrunar; spurðu þeir unglinginn, hvar
hann hefði fundið þetta gamla fje? Sór hann við guðs