Ný sumargjöf - 01.01.1859, Page 122
122
þegar vorið 1633 farið að byggja grafkapellu þar.
Ast Eleónóru á manni hennar dauðuin keyrði svo frain
úr hófi, að hún varð að átrúnaði og tilbeiðslu. A
allri ferðinni varð hún eigi slitin frá líkinu og ljet hún
opt taka lokið af kistunni, svo að hún mætti njóta
hinnar beisku huggunar að horfa á það. Stoðaði það
ekkert. þó henni væri leitt fyrir sjónir, hversu guðs orð
og mannleg skynsemi hafna slíku háttalagi, og skír-
skotað til þess, hversu opt konungur sjálfur ljet í ljósi
misþóknun sína á slíkum harmalátum. Skrifaði hún
ráðinu jafnvel frá þýzkalandi að það skyldi fresta
greptrun hans þangað til hún sjálf andaðist, svo að
hún það, sem eptir væri æfinnar, hefði ávallt þá huggun
að sjá hinn framliðna eiginmann sinn. Ráðið skoraðist
undan því sem von var, en til þess að veita henni
nokkra huggun var greptruninni frestað fvrst til febrúarm.
og síðan til júním. 1634.
Meðan á þessu stóð var grafkapellan fullgerð
og stendur hún óbreytt enn í dag. A hinum sjö
hliðum voru með fám orðum rituð afreksverk og kostir
konungs; efst undir krossinnm var settur pelekan*),
úthellanði blóði úr brjóstinu til að fæða unga sína.
21 dag júním. kom lík konungs til Brennkyrkju
og skyldi þaðan hefja út líkið næsta dag með mestu
viðhöfn. A Brunkubjargi stóðu hinar 8 fallbissur, er her-
teknar voru við Liiszen og umhverfis þær sigurmerkin
frá Breitenfeld. Meðal annars sást í líkferðinni blóð-
*) Svo heitir fugl eirm, er menn áfcur hjeldu aí) fæddi unga síua á
blól'i sjálfs síns. Listamenn hafa opt tákna% elskuna mef) mynd hans.