Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Page 44

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Page 44
44 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Melstöng var notuð til að þekja með hús undir torf og í viðlögum til fóðurs með heygjöf, ræturnar (sumtag og buska) voru notaðar í reipi (legutögl), gjarðir, reiðinga, þófa, síur og þvögur til þvotta mjólkuríláta. Melblaðka var eitt bezta fóðurgras, sem völ var á. Notin virðast hafa verið fjölþættari á dögum sr. Sæmundar Hólm á seinni hluta 18. aldar, því hann getur þess m. a. að ofnir hafi verið pokar úr melrótum (sumtagi). Um upphaf meltekju verður ekkert fullyrt. Glöggt er þó, að það er ekki bundið kólnandi veðráttu á síðmiðöldum, sem sumir hafa ætlað. Meltekja er meðal þýðingarmikilla hlunninda jarða þegar um 1100, svo sem sjá má af máldögum kristbúa á Síðu og í Land- broti, sem taldir eru frá um 1150 í Islenzku fornbréfasafni (Dipl. Isl. I, bls. 194—203). Kristbú í Dalbæ á þá „melteiga tvo fyrir neð- an Steinsmýrarfljót." Kristbú í Uppsölum á „átta tigi mels í Tíá- túningamel" og melteig, „er liggur á milli Hátúningameis og Hörgs- dalsmels." Ekki fer milli mála, að afrakstur melteiganna er fremur melkorn en blaðka, þótt hún kunni einnig að hafa verið til einhverra nytja. 1 máldaga kristbús á Þverá á Síðu, sem árfærður er til 1367 (Dipl. Isl. III, bls. 244), er því talið til eignar „60 mels í Skjald- breið.“ I máldaga Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð frá um 1330 (Dipl. Isl. II, bls. 687) er kirkjunni talið til tekna „úr Háfi vætt mjöls og vætt mjöls úr Þykkvabæ." Meiri líkur eru til, að hér sé um melkorn að ræða en um mjöl úr ræktuðu byggi. I máldaga Þykkva- bæjarklausturs 1523 eru fram taldar 6 sigðir (Dipl. Isl. IX, bls. 192). Teija verður að átt sé við melsigðir. I ritgerð Jóns Gissurarsonar um siðaskiptatímann, sem raunar er að mestu runnin frá samantekt Odds biskups Einarssonar 1593, segir svo um foreldra Gissurar biskups Einarssonar (Safn til sögu íslands og ísl. bókmennta, I, bls. 675) : „Þau Einar og Gunnhildur bjuggu á þeirri klausturjörðu, sem heitir að Hrauni, hvar í þann tíma frjóvgaðist kornakur sjálfvaxinn, og varð þeim mikið gagn að. Flestir menn sóktu þangað þennan mel.“ Meltekju í Vestur-Skaftafellssýslu getur víða í heimildum síðari alda. Elzt fræðileg greinargerð um hana er í Árnasafni í Kaupmanna- höfn, prentuð í safnritinu Blanda I, bls. 391—395. Kann hún að vera frá sr. Einari Bjarnasyni á Kirkjubæjarklaustri, samantekin í byrj- un 18. aldar. I sýslulýsingum 1744 (útg. Sögufélagsins, Reykjavík, 1957) eru nokkrar heimildir um þetta efni. Skúli Magnússon land- fógeti skrifaði um meltekju 1769, og er grein hans prentuð í Sunn- anfara 1914, bls. 75—77. Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson ferð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.