Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Page 108

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Page 108
108 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Að þessu tilefni gefnu hef ég tínt saman þessa punkta, þar eð þessi staður er mér nokkuð kunnur og heimildirnar um hann. Hef ég ekki komizt hjá að hugsa mitt um þetta efni, og lítillega hef ég vikið að því opinberlega, sbr. 1.1, 1.2 og 1.3. 1.1. Ég kom fyrst í Hraunþúfuklaustur 30. ágúst 1948 með Þormóði Sveinssyni á Akureyri, sem er manna kunnugastur í Vesturdal. Rúst- irnar voru skoðaðar, en ekkert grafið. I dagbók skrifaði ég aðeins þetta: „Litlu er að bæta við lýsingu Daniels Bruuns. Þó þykir mér meira en vafasamt, hvort það sem hann telur bæjarrústir (5) sé nokkuð annað en náttúruverk, mói. Óvissar eru einnig tóft- irnar 4 og 6, líklegri þó. En tóftirnar 1 og 2 eru öruggar, og þótt ekki væri annað, er það nægilegt rannsóknarefni. Geri ráð fyrir, að rannsóknin verði fremur torveld, sakir ógreini- leika rústanna, en meira en vikuverk fyrir 2—3 menn held ég hi-eint ekki að hún yrði. Kofi er á staðnum“. — Tilvitnun til D. Bruun á við 2.4. Svo sem sjá má var þetta aðeins lausleg athugun, en þó er hún fyrsta tilraun, sem gerð er til að meta rústirnar í Hraunþúfuklaustri, síðan Daniel Bruun var þar 1897. Margeir Jónsson leiddi það atriði fremur hjá sér, sbr. rit hans, sem vitnað er til í 2.8. 1.2. 1 framhaldi af þessu skrifaði ég í dagbók seinna á árinu eft- irfarandi athugasemdir (28. okt. 1948) : „Ekki finnst mér ólíklegt, að Hraunþúfu/cíemstwr sé í önd- verðu spaugsyrði. Nú er þar gangnamannakofi, og lengi mun hafa verið þar aðsetur leitarmanna, sbr. hellana Háubaðstofu og Björtubaðstofu. Rústirnar gætu verið eftir leitarmanna- kofa, en helzti þykja mér þær stórar til þess. En jafnvel þó að rústirnar séu eftir einhverja mannabústaði, einhver hafi búið þar eitthvert tímakorn, þá held ég samt að klausturnafnið stafi frá leitarmönnum. Allir sem verið hafa í gangnamanna- kofum þekkja þann munnsöfnuð, sem þar er viðhafður, og um hvað talið snýst. Kvenfólk hefur borið þar á góma og einnig kvenmannsleysi, og hefur þá einhverjum gárunganum orðið á munni, að staðurinn væri ljóta klaustrið. Sögurnar hafa vit- anlega myndazt eftir að tilefni nafnsins var gleymt. Síðan ég gerði mér þessa hugmynd hefur Ólafur Jónsson framkvæmdastjóri á Akureyri sagt mér, að um miðja vegu milli Reykjahlíðar í Mývatnssveit og Jökulsárbrúar (nýju) sé
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.