Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Blaðsíða 148
148
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
fyllingar rekur þarna á fjörur, verða ófáir bréfritarar hinir nýt-
ustu fastir samstarfsmenn, sem svara spurningaskrám reglulega,
þegar fram í sækir.
Á árinu bættust 351 ný númer í heimildasafn deildarinnar eða
álíka og árið áður, sem var reyndar metár. Voru því við árslok 2775
númer í þessu safni.
Starfsmaður þjóðháttadeildar sótti 19. norræna þjóðfræðingaþing-
ið, sem haldið var í Sönderborg í Danmörku 22.—27. ágúst. Voru
þar samankomnir meira en 250 þjóðfræðingar frá öllum Norður-
löndunum. Aðalumræðuefni þingsins var landamæri (grænser), bæði
milli þjóðlanda og landshluta, og voru m. a. farnar tvær dagsferðir
um landamærahéruð Danmerkur og Þýzkalands og þá ekki sízt um
Frísland. Menntamálaráðuneytið veitti styrk til þessarar farar, en
vegna kostnaðar hefur Island hingað til naumast getað sent mann
á þessi þing.
Lúðvík Kristjánsson vann sem áður að riti sínu um íslenzka sjáv-
arhætti í tengslum við deildina, eins og fram kemur fyrr í skýrslunni.
Þess var getið í síðustu skýrslu, að nokkurt fé hefði verið veitt
til kennslu í þjóðfræðum við Háskóla íslands. Kennsla í þjóðhátta-
fræði hófst svo lítillega haustið 1972, og annaðist sérfræðingur þjóð-
háttadeildar hana.“
Að öðru leyti er fátt sérstakt um safnstörfin að segja, enda fer
meginhluti þeirra fram á sama hátt frá ári til árs.
Mikið átak var gert í viðgerð safnhússins, einkum utanhúss. Var
skipt um glugga á neðstu hæð að austanverðu, svo og í turninum að
austan, en þar voru kopargluggar, sem teknir voru úr og settir tré-
gluggar í staðinn. Þá var skipt um gler í öllum gluggum á austur-
hliðinni, sett tvöfalt verksmiðjugler, sem bæði á að spara mikinn
hita og að auki halda jöfnu rakastigi í húsinu þegar búið er að setja
í lag rakakerfið, eins og til stendur.
Þá voru brotnar niður þakrennur á mestallri austurhliðinni og
settar eirrennur í staðinn, en steyptu rennurnar voru allar mjög
sprungnar orðnar og hleyptu vatni inn í veggina og síðan inn í húsið
mjög víða.
Þá kom í ljós, að þakið yfir inngangi og skrifstofu var gerónýtt,
en það hefur stórlekið í rigningum og hafði timbrið undir koparn-
um fúnað. Samskeyti milli þaks og veggja voru óþétt og loftræsting
ónóg, og einnig var koparinn á þakinu sprunginn á nokkrum stöð-
um. Reyndist óhjákvæmilegt að endurnýja koparinn á þakinu einnig,
en þetta varð mjög tilfinnanlegur kostnaður, sem ekki var ráð fyrir