Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Side 108

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Side 108
112 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉL AGSIN S arstofnun svartliðsins að annast hinar alræmdu tilraunir i fangabúðum SS á stríðsár- unum.sl Ahnenerbe hafði skipulagt mikinn leiðangur til íslands sumarið 1939 en hann fórst fyrir að mestu af ýmsum ástæðum. Hins vegar hafði Otto Reuter tekist að útvega sér farareyri og fengið stjörnufræðinginn Miiller í lið með sér. Vonuðust styrktarmenn þeirra til þess að leiðangurinn yrði til þess að þeir mundu koma „á framfæri við evrópska vísindamenn enn einni sönn- uninni fyrir afburða menningarafreki Germana".82 Rannsóknir Reuters og Mullers tóku snöggan enda þegar stríðsblikur dró á loft í ágúst 1939. Miiller var varaliðsmaður í skriðdrekasveit og flýtti sér heim. Reuter varð innlyksa um hríð og vildi þá mæla forn eyktarmörk í Þjórsárdal með hjálp íslenskra manna. En íslendingar höfðu nú séð að sér og Hermann Jónasson bannaði mælingar á slóðum Gauks á Stöng „vegna þeirrar tortryggni sem allar rannsóknir geta valdið" á stríðstímum.83 Sá armur Þriðja ríkisins sem hér um ræðir gerði sér afar háar hugmyndir um Islendinga sem fulltrúa hins hreinræktaða aríska kynstofns. Reykvík- ingar þessara ára komu þó ekki heim við hugmyndir þeirra og þeir urðu líka fyrir vonbrigðum þegar í sveitirnar var komið: Eftir ferðalög um Island gerði Reuter sér engar grillur um bændur og búalið. Jafnvel sveitakonur í afdölum á Austurlandi rökuðu á sér augabrúnir í takt við tískuna í Reykjavík og París! Síðustu vígi norrænna lífshátta á íslandi voru fallin.84 Höfundum þessarar greinar er að svo komnu ekki kunnugt um neinn prentaðan afrakstur af ferð þeirra Reuters og Múllers til Islands annan en greinargóð og skemmtileg skrif Theódórs Friðrikssonar. Má og einu gilda því að þess er vart að vænta að aðferðir þeirra og hugsanagangur hafi leitt til niðurstaðna sem trausts væru verðar umfram það sem þegar er fram komið. Þannig standa tvö einföld atriði eftir til umhugsunar úr þessum viðauka: Annars vegar sjálf tilvist Oddakofa á undarlegum stað og hins vegar sú hugmynd Theódórs Friðrikssonar að nafnið Arnargerði kunni að hafa afbakast úr Oddagerði. í þessari rannsókn hefur ekki gefist kostur á að athuga Oddakofa en síðara atriðið hefur á hinn bóginn verið kannað allrækilega eins og fram kemur í meginmáli. 81. Þór Whitehead, 1985, 73. 82. Þór Whitehead, 1985, 83. - Orðrétt ummæli þar tekin úr skjölum Ahnenerbe. 83. Þór Whitehead, 1985,84-85. - Orðrétt ummæli eftir handskrifaðri athugasemd Hermanns, en einnig er vísað til bréfs frá Steinþóri Sigurðssyni til Hermanns. 84. Þór Whitehead, 1985,85. - Tilvísun í grein eftir Reuter x tímariti Norræna félagsins í Þýska- landi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.