Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1899, Side 9

Eimreiðin - 01.07.1899, Side 9
129 Voi\ Brot úr sögu eftir Guðmund Friðjónsson. I. Vorþráin hefir búið i mér langa hríð og vonað eftir fullnæg- ingu. Hún hefir hagað sér eins og leiðslublandin óró og skimað í allar áttir, ekki einungis austur móti dagrenning og suður undir hádegissól, heldur einnig vestur i fjallgarðinn, sem ber við himin. Hún befir jafnvel horft norður í íshafið. Og þar gat hún þó sízt búist við, að sjá von sína rætast — þar sem hafáttin austræna hefir verið að verki sínu liðlangan vetur- inn og hlaðið margfaldan varnargarð móti sunnanvindi og sól, alt austan frá Svíþjóð hinni köldu og vestur að Hellulandi. Veturinn var orðinn svo langur — óttalega langur. IJó var hann styttri en hann hefir stundum verið, hinn eiginlegi vetur. En hinn — hann verður ekki mældur eða veginn. Hann hefir lagt undir sig flesta sólmánuði og hernumið margar sumartíðir og vornatur æfi minnar. Mér hefir aldrei leiðst eins mikið eftir vortíðinni sem nú, og hefi ég þó oft verið langeygur eftir henni. Loksins er hún nú komin. Hamingjunni sé lof! Ég lofa hamingjuna fyrir komu vordísarinnar; og þó veit ég eltki, hvort mér stendur nokkuð gott af henni. En hún er ljómandi fögur, skemtir auganu og hefir frítt föru- neyti. Eg sé hana glögt. Merki hennar ber við himin og ljómar í sól- skininu. Það er gert úr dýrindis guðvefi. Samkembingur hinna sjö fegurstu lita er í gunnfánanum og gullbryddur kögur á jöðrunum. Vordís! Ég hefði kosið að faðma föður þinn, Guð, fyrir framleiðslu þína. Ég vildi kyssa móður þína, Sólina, fyrir það, að hún fæddi þig og laugaði í himinvökvanum. — En ég næ ekki til þeirra. Vorsól! Ég vil taka þig í hendur mínar, setja þig upp á skrifborðið mitt og leika mér að þér — snara þér á rönd eins og skerborði og velta þér eins og gullhring. 9
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.