Eimreiðin - 01.07.1899, Blaðsíða 97
217
eð fyrra að senda skeyti milli lands og skipa, sem voru á siglingu
skamt frá landi; þeim tókst að senda skeytin hér um bil 2 mílur
vegar, og það þótt skipið væri á siglingu; menn fundu, að raf-
magnið í loftinu gat truflað verkfærin, og ekki mátti leiti eða
höfða bera milli skips og lands, að minsta kosti ef skipið var
langt í burtu; en væri skipið nálægt, gátu sveiflurnar borist gegn-
um sjálft skipið, og enda þótt verkfærunum (samloðanum) væri
sökt í sjó, hepnuðust tilraunirnar vel. Síðan hafa verið gjörðar
margar tilraunir, og meðal annars hafa menn nú í vetur sent
skeyti með þessari aðferð yfir Ermarsund milli Boulogne og Dover,
en það munu vera um 6 mílur; þær tilraunir hafa hepnast ágæt-
lega, jafnvel í þrumuveðri og stórhríðum, og Marconi sjálfur heldur,
að hægt muni vera að senda skeyti til Englands alla leið sunnan
frá Parísarborg, ef verkfærin eru höfð uppi á Eiffelturninum. Ný-
lega hefur frézt, að stofnað væri félag með þeim tilgangi, að nota
uppgötvun þessa, og sagt er, að jafnvel sé í ráði að koma á þannig
lagaðri fréttasendingu yfir Atlanzhaf, en þó er þeirri fregn varlega
treystandi enn sem komið er.
Pað er ekki gott að segja, að hve miklu liði uppgötvun þessi
kann að koma, en sem nú stendur er ekki útlit fyrir, að hún
muni útrýma símunum, en koma að góðum notum þar sem ekki
er hægt að koma símanum við. Þó er ekki vert að spá henni
neinum hrakspám að sinni, því það er ómögulegt að segja, hvað
mönnum kann að takast, er reynslan eykst og verkfærin verða
fullkomnari.
Jón forláksson.
í Hallormsstaðarskógi.
Ég elska þig björk, því þinn bróðir ég er;
sem brosandi sjúklingur heilsa ég þér
á reið yfir ríkið þitt snauða.
Þú þiggur minn koss, — hann er kveðja frá þjóð,
sem kurlar það lifandi og tínir á glóð,
en elskar það dauðvona og dauða.