Eimreiðin - 01.07.1899, Blaðsíða 66
ingu,« sagði einhver við sessunaut sinn. Skólapiltarnir heyrðu
þetta og tóku viðbragð svo mikið, að gólfið bifaðist, og strunsuðu
út i einni þvögu, og margir með þeim. Johnson gekk nú aftur
fram á ræðupallinn. Hann var búinn að leggja frá sér hattinn,
og ætlaði nú að tala upp úr sér.
»Það lítur svo út sem hinir heiðruðu fundarmenn vilji ekki
hlusta á mótstöðumann minn,« byrjaði hann. »Máske menn vilji
heldur hlusta á mig. Eg vil þess vegna leyfa mér enn á ný að
ávarpa yður með nokkrum orðum.«
»Geti ég ekki fengið að tala hér fyrir skríl þeim, sem þér
hafið keypt til þess að gera hér uppnám og háreysti, þá er engin
ástæða fyrir menn að hlusta á yður, og vil ég því skora á alla
mína menn að ganga af fundi,« sagði Mr. Moore, um leið og
hann tók hatt sinn og gekk burt. Þegar menn sáu hann fara,
kom los á marga, og menn tíndust smámsaman út á eftir, og síð-
ast var Johnson einn eftir á ræðupallinum að tala yfir nærri tómu
húsi.
VIII.
Tveim dögum síðar átti kosning að fara fram, og það er óhætt
að segja, að þá tvo sólarhringa naut hvorugur kandídatinn svefns
né hvíldar.
Kosningadagurinn er (eða ætti að vera) einn af hinum alvar-
legustu dögum, sem getur komið yfir frjálsa þjóð i frjálsu landi.
Þann dag leggur stjórnin niður völdin. Þann dag hvílir stjórn
landsins eingöngu á herðum þjóðarinnar, og með atkvæði sínu
gefur hver einstaklingur úrskurð sinn um það, hvort ill eða góð
stjórn eigi að vera í landinu um næsta kjörtímabil.
En hér fór, sem enn þykir við brenna í Kanada, að fæstir
gáfu því nokkurn gaum; það var aðeins eitt, sem fyrir þeim vakti;
að hafa sem mest upp úr kosningunum — peninga, embætti, eða
einhver hlunnindi, eða þá nokkur staup af víni, ef ekki annað.
Oll skynsamleg yfirvegun var rekin á flótta. Stjórnmálarakk-
arnir gengu um eins og grenjandi ljón og leituðu að þeim, er þeir
fengju glapið; og á kjörstaðinn komu menn viti sínu fjær af víni
og kosningaæsingum.
Og nú var kosningadagurinn runninn upp. Það átti að kjósa
á allmörgum stöðum í borginni, en hér verður aðeins drepið á