Eimreiðin - 01.07.1899, Blaðsíða 41
i6i
»Þér vitið, að stjórn vor er að mæta allmikilli mótspyrnu
út um ríkið. Hafa landar yðar orðið þess áskynja?«
»Því er ver, að slíkar raddir hafa látið til sín heyra. En þær
eru fáar, og vonandi að takast megi að þagga þær niður.«
»Gott er að heyra það. Flokkur vor í Halífax styður yður
að líkindum með fjárframlögum.«
»Eitthvað lítilsháttar — en ekki nóg. Þegar maður þarf að
smala — humm — atkvæðum, þá kostar það peninga. Við eyddum
meira en þúsund dollurum í að koma honum Smith sáluga að.«
»Já, og er ekki mikið. En í því efni getum vér nú síður
hjálpað yður. — Hvað mikið þurfið þér?«
»Þúsund dollara, að minsta kosti. Ég þarf að kaupa mér fylg-
ismenn. Svo þarf ég að kaupa blað, til að mæla fram með mér,
og fleira og fleira. Nei, ég get ómögulega komist af með minna
en þúsund dollara.«
»Ö, — hvað blaðið snertir, þá skulum við gefa því arðsamar
auglýsingar um Kanada, og jafna það á þann hátt. En styrktar-
menn yðar — hvernig væri að gera þá að agentum og gefa þeim
rífleg laun fyrir að fara til föðurlands yðar og smala löndum yðar
vestur um haf?«
»Agæt hugmynd — hreint ágæt. Það er fyrirtak. Stofna
nýlendu og senda þá heim. — Þér eruð sannir mannvinir. — En
— þrátt fyrir það þarf ég að verða yðar hjálpar aðnjótandi til þess
að fá fjárstyrk úr kosningasjóði flokks vors.«
»Þér viljið fá meðmæli vor til þess.«
»Ef yður mætti svo þóknast.«
»Flokkur vor hefir að sönnu sérstakan sjóð, sem vér verjum
eingöngu til að hjálpa mönnum vorum til að ná kosningu. Sá
sjóður hefir myndast og verið viðhaldið með frjálsum samskotum
frá vorum beztu mönnum. Þeir einir geta notið styrks úr þeim
sjóði, sem vér erum vissir um að veiti oss örugt fylgi. Ef vér
mælum fram með því, að þér fáið fjárstyrk, þá krefjumst vér þess
af yður, að þér fylgið oss í öllum þeim málum, sem flokkur vor
kynni að vilja koma fram á þingi. Ef þér gerið það, og kostið
kapps um að halda löndum yðar í flokk vorum, þá munuð þér
aldrei fá ástæðu til að iðrast þess.«
»Eg geri það. Það er sjálfsagt. Mér er svo kunnug flokka-
skifting í stjórnmálum hér í landi, að ég veit, að hver, sem tekur
þátt í stjórnmálum, verður að fylgja örugt þeim flokknum, sem
ii