Eimreiðin - 01.07.1899, Blaðsíða 75
195
Johnson var nógu hygginn til þess að láta ekkert bera á
fögnuði sínum yfir þessu boði. Hann sat þegjandi eins og hann
væri að íhuga málið. Fimm hundruð dollara fyrir ekki neitt, ef
hann aðeins vildi framfylgja því, að stjórnin kastaði í hít þessa
gráðuga félags nokkrum miljónum dollara af landsfé. Stjórninni
og félaginu bar það á milli, að stjórnin vildi lána féð, en félagið
vildi að það væri gjöf. Og nú var það að bera fé á þingmenn,
til þess að eiga víst fylgi þeirra. — Fimm hundruð dollara, — jú,
það var ekkert áhorfsmál að taka því; það er ekki á hverjum degi,
að mönnum í Kanada — jafnvel þó þingmenn séu — gefst tæki-
færi á að innvinna sér svo laglega upphæð fyrir ekkert.
»Yður mun' þykja boð mitt oflágt,« sagði Agúst, þegar hann
sá, að Johnson ætlaði ekkert að segja. »En það getur lagast. Ég
hækka það upp í sex hundruð dollara.«
»Leyfið mér að fullvissa yður um, að þér hafið misskilið þögn
mína. Ég var að yfirvega málið. Boð yðar er höfðinglegt, og ég
er yður þakklátur fyrir það.«
»Og þér takið því?«
»Já. Hér er hönd mín.«
Þeir tóku höndum saman.
»Beztu þökk fyrir,« sagði Agúst. »Ég sé, að þér eruð vitur
og réttsýnn stjórnmálamaður; yður dylst ekki, hve þarflegt fyrir-
tæki vort er fyrir ríkið í heild sinni.«
»Það er mjög þarflegt, og ég hefði álitið það skyldu mína að
styrkja það eftir megni, jafnvel þó engra launa væri að vænta, en
þvi fremur geri ég það sem þér launið fylgd mína jafnhöfðing-
lega.«
»Þá er málið komið í bezta horf. Gæti ég nokkurntíma gert
yður greiða, þá leitið til min.«
»Það boð skal ég nota mér síðar — -— þakk’ yður fyrir.«
»Af því ég á mjög annríkt, ætla ég ekki að tefja lengur,«
sagði Agúst og stóð upp. »Við skiljum hvor annan, er ekki svo?«
Jú, þeir skildu hvor annan. Það var ekki hætt við öðru.
Þeir gengu samhliða út á strætið, og kvöddust þar.
Þetta var merkisdagur í lífi Johnsons, Hann hafði náð sæti
í þingsalnum, og grætt 600 dollara.
Mánuði síðar átti þing að koma saman, og Johnson fór til
Ottawa viku áður. Það á ekki við í sögu þessari, að skýra frá
13*