Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1899, Page 63

Eimreiðin - 01.07.1899, Page 63
i83 eða vantrausti, er þér berið til stjórnar landsins i Ottawa. Ég stend hér frammi fyrir yður í dag, til þess fyrst og fremst að æskja fylgis yðar og atkvæða á kjördegi, og í öðru lagi til þess, að skýra yður frá stefnu minni í hinum helztu málum landsins. An þess að mér komi til hugar að efast um, að þér munið fylgja hinni réttu hlið, því þér, íbúar þessarar borgar, eruð allir svo sjálf- stæðir í skoðunum yðar, að þér látið ekki tælast af mútum eða fögrum loforðum (Heyr! heyrl), þá vil ég lýsa yfir því, — og ég geri það alveg óhræddur, treystandi á fylgi yðar —, að ég sæki um þingmensku undir merkjum stjórnarinnar (Rödd frammi í salnum: Niður með stjórninal). Alt frá þeim tíma, er ég fór fyrst að taka þátt í stjórnmálum þessa lands, hefi ég eftir mætti stutt þann flokk, og því einnig stjórnina í Ottawa. (Fari hún til fjand- ans!). Og allan þann tíma, sem ég hefi dvalið meðal yðar, hefi ég leitast við að kynna mig sem heiðvirðan mann innan um heið- virt fólk. (Heyr! heyr!). Þess vegna dirfist ég nú að bjóðast til að vera fulltrúi yðar á sambandsþinginu. Þess vegna dirfist ég að standa hér frammi fyrir yður í dag, og æskja atkvæða yðar.« Nú gall við rödd frammi í húsinu: »Legðu frá þér hattinn,« en Johnson skeytti því ekkert og hélt áfram. »Hvað snertir málefni þau, er ég hefi hugsað mér að fylgja fram, ef ég verð kosinn þingmaður, þá ska) ég geta þess, að ég mun stuðla að því eftir megni, að stjórnin leggi fram fé til opin- berra starfa hér í Halífax, svo sem til að umbæta skotvirki bæjar- ins og höfnina (Heyrl), sem fyrir löngu hefði átt að vera búið. En það er ekki stjórninni að kenna, þó það alt til þessa hafi farist fyrir. Henni hefir verið fullljóst, hvað hér þyrfti að gera, en hún hefir haft í mörg horn að líta. Nú er vissa fengin fyrir þvi, að verkið verði unnið, því verkfræðingar stjórnarinnar hafa verið hér til þess að gera áætlun um kostnaðinn.« »Það sannar ekkert,« hrópaði einhver, »þeir hafa gert það fyrir hverjar kosningar.« »Svo vil ég með nokkrum orðum minnast á tollmálið,« sagði Johnson og leit ofan í hattinn, »því það er annað stórmál---------« »Hann les upp úr hattinum,« æptu nú margir frammi í sal- num; og áður en hann gæti áttað sig, flugu jarðepli, tóbaksplötur og annað góðgæti eins og drífa í kringum hann. Hann hörfaði aftar á sviðið til að hlífa sér og hélt á hattinum. »Gætið fundarskapa!« hrópaði forsetinn og stóð upp. »Hæfið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.