Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1899, Page 64

Eimreiðin - 01.07.1899, Page 64
184 hattinn,« æptu menn frammi í húsinu. í sömu svipan kom stórt jarðepli sem kólfur flygi og sló hattinn úr hendi Johnsons. Hann datt á gólfið og blöðin fuku um alt sviðið. Stefnuleysingjar ráku upp skellihlátur. Johnson reiddist og gekk aftur fram á pallinn og byrjaði í ákafa að tala blaðalaust. Þegar hann hafði skamma stund talað, heyrðist skarkali mikill úti á strætinu. Hurðinni var hranalega hrundið upp, og inn kom hópur af skólapiltum og sópaði mjög að þeim. Þeir höfðu allir þríhyrndar húfur á höfðum, og voru í gráum kápum, sem þeir höfðu varpað yfir herðar sér. Þeim veitti erfitt að ná sætum og bárust um salinn, og námu loks staðar andspænis saumaklúbbnum. Fáni klúbbsins reis upp við vegginn, eins og áður er á vikið, og blasti því við skólapiltunum. Leið ekki á löngu, áður einn þeirra fór að aðgæta hann. Hann las yfirskriftina og hvíslaði glottandi einhverju að sessunaut sínum, sem einnig fór að lesa á fánann og hvíslaði einhverju að þeim, er næstur sat og svo koll af kolli. E*að leyndi sér ekki, að þeim fanst mikið til um fánann, því þeir gláptu stöðugt á hann. Frúin veitti þessu eftirtekt og varð eldrauð í framan. Henni fanst, að hljóðskraf og hlátur skólapiltanna hlyti að standa í ein- hverju sambandi við sig, en gat ekki gert sér grein fyrir, hvernig það gæti verið. En því var þannig varið: Hún hafði, eins og fyr var á vikið, farið til Gríms, og skýrt honum frá, að þær ætluðu að ganga með fána um strætin í virðingar skyni við Johnson, og og beðið hann að finna handa þeim latneskt orðtak, til þess að sauma á hann. Grímur gerði það bæði fljótt og vel. Hann hafði líka setið þrjú ár við latínunám og var ekki blár innan. Hann gaf þeim orðtakið: In lioc signo vinces (0: undir þessu merki skaltu sigra), en í ógáti breytti hann orðinu hoc i enska orðið hog (svín) og varð því mottóið á fánanum þannig: In hog signo vinces (undir svínsmerki skaltu sigra). Þessi keskni skólapiltanna ágerðist svo, að prestskonan gat ekki þolað slíkt lengur. Hún stóð upp, og hét á félagssystur sínar að ganga af fundi, og þola ekki lengur spott og aðhlátur þríhyrndu dónanna, sem sætu andspænis þeim. Þeir heyrðu orð hennar og var heldur en ekki dillað. En þær rigsuðu allar út í einni halaróu með bræðisvip miklum og komu ekki aftur; en fáninn með orð- takinu smekklega stóð þar eftir sem þegjandi vottur um latinu- lærdóm Grims.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.