Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1899, Page 73

Eimreiðin - 01.07.1899, Page 73
193 »Ef þér álítið að rangindum sé beitt við yður,« sagði Grímur, »þá er yður innan handar að kæra þegar kosningar eru afstaðnar.« »Sjálfsagt. Ég þarf ekki að fá leyfi yðar til þess.« Grímur svaraði ekki, en var öllu varkárari það sem eftir var dagsins. Kom nú sá tími, að loka skyldi kjörstað. Atkvæðin voru talin og hafði Johnson tuttugu fram yfir Moore. Það þótti honum lítið og þóttist vita, að margir hefðu svikið sig. Hann ásetti sér að biða, unz bráðabirgðaskirteini væri komið frá hinum öðrum kjörstöðum i borginni. Urslitin urðu þau, að hann náði kosningu með hundrað sex- tíu og fimm atkvæðum fram yfir Mr. Moore. Þegar úrslitin urðu kunn úti á strætinu, var eins og allir ætl- uðu að ganga af göflunum. Hvert húrraópið kvað við á fætur öðru, og innan um heyrðist bölv og formælingar. Menn hrópuðu hvað eftir annað á Johnson, að hann skyldi sýna sig. Hann gekk fram i dyrnar, og nokkrir efldir menn, sem stóðu þar, hófu hann á loft, og báru hann syngjandi á öxlum sér yfir á Atlantic-hótelið og settu hann upp á veitingaborðið. Þar var mannsöfnuður fyrir, og þar varð hann að halda ræðu á ný, og að því búnu var botn- inn sleginn úr fullri tunnu og tekið til óspiltra málanna. Klukkan var farin að ganga tólf um nóttina, þegar Johnson loks gat losað sig þaðan. Þá gekk hann út, en var aðeins kom- inn út á strætið, þegar maður gekk að honum, lagði höndina á öxl hans og sagði: »Mr. Johnson, lofið mér að tala við yður.« IX. Johnson leit upp og sá, að frammi fyrir honum stóð aldraður maður, hár vexti og tiguglega búinn, að því er sjá mátti. Hann var í loðkápu úr oturskinnum, sem nær því huldi hann allan. Húfu hafði hann úr sama efni. Skegg hafði hann á höku og vöngum, grátt af hærum, en annars var andlit hans ekki ellilegt. Hann leit alt í kringum sig, lagði varirnar þétt saman, og sýndist Johnson, neðri vörin falla yfir þá efri. Þegar hann sá, að þeir voru tveir einir, sagði hann svo lágt, að aðeins heyrðist: »Ég þarf að ræða áríðandi málefni við yður. Leyfið mér að geta þess, að ég heiti Agúst, og er einn af forstöðumönnum Kan- ada og Bandaríkja járnbrautarinnar. Ég kom hingað til bæjarins í dag, og heyrði áðan, að þér væruð kjörinn þingmaður, og því
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.