Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1899, Side 96

Eimreiðin - 01.07.1899, Side 96
216 7. mynd; þar er E galvansker og liggja símar út frá báðum plöt- um þess; G er segulnál, sem segir til, ef straumur kemur frá kerinu; C er hinn eiginlegi samloði; það er glerpípa, lokuð í báða enda og nærri full af ryðguðum smánöglum eða öðru þess háttar; símarnir frá E ganga hvor inn í sinn enda pípunnar. Eins og stendur fer enginn straumur úr kerinu, því að hann kemst ekki gegnum naglaruslið í samloðanum, af því að naglarnir eru tyðgaðir; en komi nú rafmagnssveiflur að þessu verkfæri, er eins og naglarnir verði alt i einu samanhangandi og nú kemst straum- urinn frá kerinu gegnum samloðann og sést það af því, að segul- nálin fer að sveiflast; sé samloðinn svo hristur ofurlítið, hættir straumurinn þegar í stað — þá eru naglarnir ekki samanhangandi lengur— og svo stendur þangað til nýjar rafmagnssveiflur koma; þá kemur enn straumur og svo koll af kolli. Það hefur nú sýnt sig, að þó rafmagnsneisti sá, sem setur sveiflurnar af stað, sé langt í burtu, fer straumur gegnum samloð- ann þegar sveiflurnar koma. Þetta hefur Marconi notað til frétta- sendinga; síminn frá galvanskerinu E á 7. mynd er látinn ganga utanum segulskeifuna í rittóli Morses, svo gegnum samloðann og aftur til kersins; þegar sveiflurnar koma, framkalla þær straum í þessum síma; skeifan verður segulmögnuð, dregur að sér akkerið og alt gengur á sama hátt og lýst er hér að framan; munurinn er aðeins sá, að straumurinn, sem segulmagnar skeifuna, kemur ekki langar leiðir að, heldur er hann framleiddur þar á sama stað. Til þess að straumurinn hætti jafnskjótt og sveiflurnar hætta, býr Marconi svo um, að samloðinn hristist altaf; þá stendur straum- urinn gegnum rittólið og samloðann altaf jafnlengi og neisti sá, sem framleiddi sveiflurnar; með því að hafa lengri eða skemmri neista, fá menn þá lengri eða skemmri straumkipp, og þar með strik eða púnkt á pappírsræmuna í rittólinu (sjá 4. mynd). Auk þessa, sem hér hefur verið minst á, er ýmislegur annar útbúnaður til þess að gjöra verkfærin nákvæmari, og verður ekki skýrt frá honum hér. Þó skal geta þess, að mönnum hefur tekist að gjöra hvern samloða svo úr garði, að hann segir ekki til annara sveifla en þeirra, sem koma frá einhverjum einum vissum stað, svo að þótt rafmagnssveiflurnar berist í allar áttir, bera þær ekki boð nema til rétts hlutaðeiganda. Nú er sem óðast verið að gjöra tilraunir með fréttafleygi þennan í flestum löndum; Italir byrjuðu og reyndu þegar í hitt
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.