Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1899, Page 100

Eimreiðin - 01.07.1899, Page 100
220 Það var eins og þessi hugsun friðaði hana snöggvast. í siðustu regnhryðjunni hatði skýmökkvinn sigið niður undir miðjar hlíðar, svo hafði hann lyft sér snögglega aftur. Það lyfti dálitið undir í norðrinu og í sama bili brá daufum roða á heiðar- brúnina og regnþyknisskörina, sem á henni hvíldi. Það var endur- skin af hinum seinustu, margbrotnu geislum vorsólarinnar, sem fyrir stundarkorni var horfin fyrir hafsbrún. Roðinn hvarf skjótt, — eftir fáein augnablik og hin úrsvala, húmdimma vornótt grúfði sig yfir alt þögul og kyr. »Þið sjáist aldrei framar,« sagði hún í hálfum hljóðum; orðin voru borin fram af djúpu, þungu andvarpi. Það var eins og brjóstið ætlaði að springa, og nú féllu tárin tið og þung eins og steypiregnsdropar. »Elskan mín!« var sagt með lágum stunuróm, »reyndu að vera róleg.« Hún hrökk við, stóð upp og laut niður að honum. Hann klappaði á kinnina á henni og strauk af henni tárin. »Þú hefur lofað mér, að reyna að vera róleg.« Meira gat hann ekki sagt; stunurnar urðu þyngri og tíðari og eftir örfá augnablik var hann farinn að háhljóða. Hún kallaði fram fyrir húsdyrnar á bróður hans, sem var vanur að hjálpa henni til að hagræða hon- um, þegar hann fékk kvalaköstin. Hann bylti sér í rúminu viðþolslaus. »Bara þetta yrði nú síðasta kastið,« heyrðist óglögt milli hljóðanna. »Guð hjálpi mér, þessa hefur hann aldrei óskað fyrri,« sagði hún með grátekka og sneri sér fram að glugganum. »Ó ég vildi þó heldur að hann dæi núna, en þegar hann er kominn frá mér,« hugsaði hún, — »en ég veit samt ekki, ég má ekki hugsa til þess.« Hann hafði reist sig upp í fangið á bróður sinum, en hneig nú örmagna aftur á bak á koddann. »Ætli það sé nú ekki búið, — hvar eru börnin,« sagði hann með þungri geðshræringu. »Þau eru sofnuð fyrir löngu,« sagði hún grátandi, um leið og hún sneri sér að rúminu og tók annari hendinni um úlfliðinn á honum, en studdi hinni á brjóstið. Hún skildi vel, hvers vegna hann spurði eftir börnunum. Þegar hún fann, að hjartslátturinn var líkur og vant var i kvalaköstunum, varð hún rólegri. Kval- irnar virtust lika vera að minka og hann hætti von bráðar að hljóða. *
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.