Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1899, Page 108

Eimreiðin - 01.07.1899, Page 108
228 arðmeiri en laxveiðin í ánum, og verðum sér að játa, að oss finst þetta dálítið vanhugsað. Sé það rétt, sem vist er engum efa undirorpið, að selurinn eyði miklu af laxi og sé þannig laxveiðinni til hins mesta hnekkis, hvað er þá líklegra en að laxveiðin ykist að miklum mun í þeirri á, sem selnum væri algjörlega bægt frá, og yrði brátt margfalt arðmeiri en laxveiðin og selveiðin eru nú saman- lagðar. Vér erum eindregið þeirrar skoðunar, að neyta eigi allra bragða til þess, að fæla selinn burt, ekki aðeins úr ám og ármynnum, heldur einnig af öllum fjörðum og flóum landsins, að svo miklu leyti sem framast er unt. Að minsta kosti ætti hið allrabráðasta, þegar á næsta þingi, að nema selafriðunarlögin úr gildi, þennan sorglega vott íslenzkrar löggjafarskammsýni. — Galli er það á rit- gjörðinni, að ekki er þar getið vísindanafnanna á dýrategundum þeim, sem nefndar eru. Svo mikill ruglingur er á isl. nöfnunum, að þessa er full þörf. Hvaða seltegund er t. d. að taka »útselurinn« á Breiðafirði? Að endingu skal þess getið, að vér teljum rannsóknir þær, sem hér er um að ræða, svo mikilsverðar og urn leið svo vandasamar og umfangsmiklar, að maður sá, er gefur sig við þeim, þarf aö geta helgaö sig þeim aö öllti leyti; annars er hætt við, að þær verði kák eitt og árangurinn lítill sem enginn. Þetta ætti þingið að athuga. St. St. BJARNI JÓNSSON: BALDURSBRÁ. Rvík 1898. »Sá verður tvisvar feginn, sem á steininn sezt«, segir gamalt spakmæli. En sá, sem les Baldurs- brá, verður líklega aðeins einu sinni feginn — þegar hann hefir lokið lestrinum. Hvert það verk, sem er þess vert, að það sé unnið, er einnig þess vert, að það sé unnið svo vel, sem hægt er. Þetta ætti hver maður að hafa hugfast. Enginn sláttumaður er svo fávís, að hann viti eigi, að þvi aðeins tekur hreint úr ljáfarinu, að ljárinn sé brýndur, og hann lagður þétt að rótinni. Það hefir ekki þótt þungt verk, að halda á prjónum. En ef það er unnið með hangandi hendi, verða lykkjuföll á prjónlesinu, og gallar í vörunni. En svo ilt, sem það er, að vinna likamleg störf utan við sig og aftan, þá tekur þó út yfir, þegar skáldin yrkja með hangandi hendi. En það hefir höf- undur »Baldursbrár« gert — viljandi eða óviljandi. Bókin er að vísu snauð af skáldlegum hugmyndum; en þó er hún fátækari af hagmælsku og málsnild. Það er því heldur óheppilegt, að setja framan á hana vísu Jónasar: -Móðurmálið mitt góða« o. s. frv. Orðfærið er víða óhöndulegt. Óþörfum lýsingarorðum er stráð víðsvegar; en meinlokurnar standa víða þvers um i hendingunum; og skal ég nú færa sönnur á þessi ummæli. Snemma byrja barna mein: Þegar fáum blöðum er flett í bókinni, sér »maður« þetta: Norðurljósin loga fríö á leiðum himinsala; fölnuð grösin blika bliö . . . Það er satt, að norðurljósin eru fríö. En þau eru meira og er þetta að vísu engin lýsing. Bliöa grasanna er heldur ekki á marga fiska, sem varla er von, þar sem þau hafa engin skilningarvit, svo kunnugt sé. Leiðir himinhnatta eru kunnar. En leiðir himinía/a eru engar til; því þeir eru aldrei á ferð og eiga enga Svínahraunspólitík. — Þá talar höf. um »lóurödd í hrísrunni« og er það að vísu rangt. Hún hefir jafnan haldið sig að móunum, blessuð lóan; þeir eru föðurleifð hennar og móðurjörð á sama hátt og birkiskógamir eru ættlönd þrast- anna. — Allir vita, að sumarsólin er »svásleg« og að liljan er »ljós«. Lýsingar-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.