Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1899, Page 110

Eimreiðin - 01.07.1899, Page 110
230 Stöku sinnum bregður fyrir laglegum hugmyndafe/HÍ«>« hjá hö£ — en varla nema pörtum. Hugmyndirnar sjást sjaldan fæðast eða þroskast; þær koma ekki né fara, heldur er því líkast, sem þær séu limaðar sundur — sýningin hverfur hálfséð. Höf. er mjög títt að skifta setningum í miðjum ljóðlínum, og er það næsta ilt, að neyðast til að þagna í miðri hendingu. Kvæði, sem eru þannig ort, verða varla lesin sæmilega, og alls ekki, ef hendingarnar eru stuttar. — Bjarni yrkir oft undir fomyrðalagi, en aldrei vel. Sá háttur er fallegur, ef hann er vel kveðinn; en þá verður að vera tilbreyting í honum. Skáldið má ekki lippa hann á seina gangi, heldur verður það að »skifta um« — hafa sum sporin (hendingarnar) lengri en sum. Fallegan fornyrðahátt má læra af Eddukviðunum, Andvöku Bólu-Hjálmars og ýmsum kvæðum eftir Matthías og Bjarna Thór- arensen. Laglegasta kvæðið í bókinni mun vera á bls. 125. Á bls. 123 er mjög fallegt vísuorð: »og lof um þig er altaf satt«, segir höf. urn ástmey sína. Þeir, sem þekkja aðra tilfinningu en þá, sem er þrdöbein undirrót ómegðarinnar, munu kannast við sannleika og fegurð þessara látlausu orða. En því er ver, að slík bláber eru of fá, syrgilega fá á borði höf. — Önnur vísan í kvæðinu »Á vetrar- daginn fvrsta«, er falleg, auk smákorna hingað og þangað. En ef bókinni er líkt við námu, þá verð ég að líkja henni við þá námu, sem hefir svo lítið gull að geyma, að afraksturinn borgar engan veginn fyrirhöfnina við að vinna hana. Það er ekki geðfelt verk, að sækja slíka skóggangssök, sem þessi er, á hendur höfundi, sem fár eða enginn getur veitt lið, og sem þar að auki er per- sónulega kunnur að góðu, heldur en hitt, þeim, er þetta ritar. En fleira verður að gera en gott þykir. Það gengur ærið illa að selja góðar bækur hér á landi, og þar sem höfundar þeirra geta ekki þrifist, virðist það vera rangt, að láta höfund óátalinn, sem gefur út eða semur þrjár bækur (skáldrit), sem eru hver annari ónýtari. Bjarni skoraði eittsinn á landa sína í Sunnanfara, að dæma allar ónýtar bækur »óalandi og óferjandi«. Nú er röðin komin að honum, og er það þó vonum seinna. Það er ekki eins auðvelt, að verða skáld, eins og margur kann að ætla. Fyrst og fremst þarf náttúrugáfan að vera til staðar, þekking á tungunni og til- finning fyrir fegurð hennar, og ekki sízt lífsreynsla. Enginn yrkir góð sorgar- kvæði, gleðisöngva, háðvísur eða ástargælur, nema hann þekki sorgina, gleðina, hæðnina og ástina af eigin reynd. Skáldið verður að hafa ratað í æfintýri. Það verður og að vera vandvirkt. Það má ekki skirrast við að leggja sig í bleyti; það má ekki spara merg né blóð, ekki krympa sig, þótt þvi verði klaksárt f heilanum við eftirleitun hugmynda og orða. Það sést á sumum kvæðum Bjarna, að hann þekkir sumar þær tilfinningar, sem að réttu lagi eru taldar einna sterkastar allra tilfinninga. En fyrst hann yrkir samt ekki falleg kvæði, þá er það auðsætt, að honum er meinað bekkju- neyti Braga. G. Fr. ÍSLAND OG ÍSLENZKAR BÓKMENTIR ERLENDIS: FORNNORSK OG FORNÍSLENZK BÓKMENTASAGA. í Eimr. II,. 151—3 var skýrt frá því, sem þá var út komið (I. b. og II. b. 1. h.) af þessu mikla riti eftir prófessor Finn Jónsson. Síðan hafa komið út af henni tvö stór hefti (II, 2 — 3) og er nú öðru bindinu lokið. Þessi hefti eru um sagnaritunina á 12. og 13. öld. Er þar fyrst skýrt frá, hver skilyrði vóru fyrir hendi hjá ís-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.