Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1921, Blaðsíða 32

Eimreiðin - 01.01.1921, Blaðsíða 32
32 í WEINGARTEN. [EIMREIÐIN Pá er drepið á dyr. »Entrez!« (kom inn) og inn kom ungur franskur liðþjálfi; er hann sá að við vorum á ein- tali bað hann afsökunar og ætlaði óðara að hverfa út aftur. »Nei, gerið svo vel; samtali okkar hér er lokið«. Eg kvaddi hinn blinda vin minn og leiddi hann til félaga hans, sem beið fyrir utan dyrnar. »Eg þurfti að ráðgast ofurlítið við yður viðvíkjandi söngnum á morgun«, mælti liðþjálfinn. »Eg er ofurlítið brot úr söngstjóra og hefi myndað dálítinn söngflokk meðal særðu fanganna hér, og hefi verið að æfa fyrir guðsþjónustuna«. »það gleður mig mikið að heyra. Leikið þér einnig á orgelið?« »Nei, faðir. Eg verð að stjórna flokknum. Á orgelið leikur dómkirkjuorganistinn hér, sem er þýskur prófessor. Hann gerir það ágætlega. Eg hefi ráðfært mig við hann um alt fyrir morgundaginn«. Svo nefndi hann þá sálma sem þeir vildu syngja, flesta margraddað; eg gat ekkert fundið að þeim, en lofaði hann mjög fyrir áhugasemi hans. Hér tók eg svo á móti heimsókn æði margra, þeirra er verst voru á sig komnir. það var orðið áliðið kvöldsins er eg kom aftur inn í prestshúsið til þess að snæða kvöld- verð, þar á eftir varð eg að umsemja ýmislegt i prédikun minni, því eftir þessi nánu kynni við tilvonandi áheyr- endur mína þurfti talsverðu að breyta frá því er eg hafði upphaflega ætlað. Laust fyrir kl. hálf tíu daginn eftir var eg kominn inn i skrúðhús dómkirkjunnar miklu. Allir Frakkar, þeir er gengið gátu eða réttara sagt, með einhverju móti gátu dregist áfram, voru þegar komnir til kirkjunnar, með for- ingjana fremsta í flokki. Þeim hafði verið ætlað pláss í miðri kirkjunni inst. Undir hliðarhvelfingum kirkjunnar, báðum megin við Frakkana, var allmikið af öðru fólki, sérstaklega þýskum foringjum, sem vildu einnig vera við guðsþjónustuna. Klukkan nákvæmlega hálf tíu steig eg i stólinn og eftir stutta bæn hafði eg yfir jólafagnaðarboðskapinn upp úr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.