Eimreiðin - 01.01.1921, Page 109
EIMREIÐINI
TRÚARBRÖGÐ OG VÍSINDI
10»
eg sýna frelsi drottins«. Eða þar sem Kristur sagði: »Sá
sem vill gera vilja föður míns, mun komast að raun um,
bvort kenningin er frá guði«.
t*á förum vér einnig að skilja með Páli postula, bvernig
á því stendur, að »guð hefir aldrei látið sjálfan sig án
vitnisburðar«, eða hvernig Pétur postuli höndlaði þenna
sannleika, að »sá sem óttast guð og stundar réttvísi, er
honum þóknanlegur, hverrar þjóðar sem er«.
Og þá förum vér líka að skilja, hvernig á því stendur,
að guð birtist ekki fyrst og fremst vitringum og fræði-
mönnum, ekki sagnfræðingum eða heimspekingum, ekki
hinum lærðu guðfræðingum, heldur þeim sem búa yfir
hreinu hjarta, þeim sem eiga hjarta litla barnsins.
Ennfremur förum vér þá að skilja, hversu því er varið,
að vér, á bestu augnablikum vorum að minsta kosti,
finnum til þess, að vér með fullri meðvitund reynum að
komast í samfélag við þetta æðra vald í bæninni, að oss
finst þá einhvernveginn — vér vitum ekki hvernig — að
dyr opnist að æðra lífi. Tennyson skáld segir: »Bænin
kemur meiru til leiðar, en þennan heim dreymir um.
Lát þess vegna bæn þína hefjast eins og goslind upp til
guðs nótt og dag; því hvað taka mennirnir fram ómálga
dýrum, ef þeir, þótt þeir þekki guð, fórna ekki höndum
til bænar bæði fyrir sjálfum þeim, og þeim, er þeir kalla
vini sina. Öll jarðarkringlan er á alla vegu bundin gulln-
um festum um fætur guðs«.
Og enn, mundum vér fara að skilja, hvernig því er
varið, að trúarbrögðin standa hvorki né falla með neinni
sérstakri kirkjudeild, eða trúarjátningu, eða neinum presti,
eða neinum helgisið, eða jafnvel neinni bók. Háleit trúar-
brögð voru til áður en ein lína í Nýjatestamentinu var
rituð, Og vissulega mundu trúarbrögðin sjálf ekki líða
undir lok, þótt allar bibiíur glötuðust, og öll kirkjufélögin
liðu undir lok. Að vísu væri það afarmikið tjón, en þó
mundu eftir standa þessar tvær miklu staðreyndir: guð í
öllum sinum óendanlega mætti og kærleika, og mannleg
sál með öllum sorgum sínum og nauðþurftum. Óbifanleg
mundu standa hin sömu eilifu frumlög réttlætis, miskunnar