Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1921, Side 124

Eimreiðin - 01.01.1921, Side 124
124 DRAUGUR IEIMREIÐIN LJÓÐMÆLI eftir Porstein Gislason, Rvík 1920 324 bls. Gömlu þjóðskáldin hverfa af sjónarsviðinu hvert eftir annað, nú síðast Matthias. Og þótt upp sé að renna ný blóm, og pau ekki svo kotungsleg sum, pá er samt eins og skarðið eftir pá gömlu fyllist illa. Nú eru nýir timar að ganga í garð, og ungu skáldin eru herrar þeirrar tísku, er með peim kemur. Pað má næstum pví sjá hatta fyrir, par sem mætist pað gamla og nýja. Nú um stund heflr yngri stefnan átt megnið af Ijóðum þeim er birtst hafa, og pví verður ekki neitað, að með öðru betra hefir par verið nokkuð mikið af þankastrykum og slíkri sundurgerð, og lífsskoðunin með köflum bjálfaleg: svefnprá og harmatölur. Pað er því hressandi að fá handa milli gamal-íslensk ijóð, med rígbundnu og þó hjóllipru formi og i hressilegum anda. Ljóða- bók Porsteins sýnir okkur, að enn er ekki örfallin gamla fylk- ingin þjóðskáidanna, sem virtu bragreglur og hafði aldrei til hugar komið að þankastryk mætti nota i orða stað, þegar skáldið hættir að skilja sjáift sig. Langt er nú síðan Porsteinn Gíslason tók að yrkja. Sum kvæði hans höfum við, sem yngri kynslóðinni heyrum, pekt frá ómuna tíð. En þó kvað ekki verulega að fyrstu bókinni hans. Pað voru helst einstaka gamankvæði, sem festust i hugum manna. »Pú kystir mig áðan mín kæra« er orðið húsgangur, og heflr náð pví aðalsmerki, að ferðast um landið án pess að menn viti höfundinn. En svo kom litla kverið skömmu eftir aldamótin, og hlóð rammgjörvan stall undir frægð Porsteins. í pvi eru ýms pau kvæði, sem nú prýða pessa nýju ijóðabók, og segja má, að Porsteinn hafl ekki farið fram úr pví enn, pótt hann hafi nú allmiklu við aukið. Porsteinn Gíslason er einskonar hirðskáld. Hér um bil priðj- ungur bókarinnar er tækifæriskvæði ort á ýmsum 50 ára og 100 ára afmælura, við konungskomu og konungslát, vigslur húsa og stofnana, í minningu merkra manna o. s. frv. Er furðanlegt hvað honura tekst að blása anda i þessi ieiðu efni og flnna eitt- hvað út úr þeim. Hann sér t. d. Steingrím Thorsteinsson í æðrl tilveru eins og nokkurskonar verndaranda landsins gegn vor- kulda og sólarleysi: Griptu nú gígjuna pína sýng og bið sóllandsins dísir í geislanna heimi, að senda’ hingað vorið. (bls. 41) og gat fátt átt betur við um hann. Um Jónas Hallgrímsson segir hann pessi laglegu orð: ísland geymir ekki margt ef það gleymir minning þinni. (bls. 6). Porvaldi Thoroddsen sendir hann geysi snjalt kvæði. Par er þetta í: Stóð hann par í risa örmum er hin stóru fljót í reifum liggja
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.