Morgunblaðið - 10.05.2001, Síða 30

Morgunblaðið - 10.05.2001, Síða 30
NEYTENDUR 30 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ HEILDVERSLANIR eru þessa dagana að hækka verð á ýmsum vörum um 3-37,7%. Heildverslunin Ísflex hf. hækkaði þann 1. maí sl. m.a. svissnesku snyrtivörurnar frá La Prairie. Önn- ur hækkun er fyrirhuguð í dag, 10. maí, en að sögn Berglindar Ólafs- dóttur, framkvæmdastjóra Ísflex, eru flestar vörur fyrirtækisins að hækka sem nemur 3 til 10% í þessum mánuði. „Við höfum reynt að halda að okk- ur höndum þegar kemur að verð- hækkunum en sáum einfaldlega ekki fram á að geta það lengur. Ástæðu verðhækkunarinnar má fyrst og fremst rekja til gengisbreytinga,“ segir Berglind og bætir við að á næstu dögum muni fyrirtækið fylgj- ast vel með gengisþróuninni. Að hennar sögn eru Adidas-ilmarnir dæmi um vörur sem hækkar um 10%. Flestar vörur hækka um 4% Um mánaðamótin hækkaði Papco hf. flestar vörur sínar sem nemur 4%. „Af vörum sem hækkuðu má nefna salernis- og eldhúsrúllur, handþurrkur, borðdúka og servíett- ur,“ segir Baldur Baldursson, fram- kvæmdastjóri Papco hf., og bætir við að ástæða hækkunarinnar sé fyrst og fremst vegna gengisins sem rokið hefur upp. „Vonandi á þessi hækkun eftir að ganga eitthvað til baka en með þessari 4% hækkun er fyrirtæk- ið að taka hluta af hækkuninni á sig.“ Royal Oak-kol hækka um 31 til 37,7% Olíufélagið hf. hækkaði nýverið Royal Oak-kol, minni gerðina, sem nemur 31% og stærri gerðina sem nemur 37,7%. Royal Oak-kveikilög- urinn hækkaði síðan um 14,5%. „Olíufélagið hf. hefur um árin ver- ið umboðsaðili fyrir Royal Oak-vör- urnar þar til fyrir tveimur árum að heildverslun Eggerts Kristjánsson- ar kom inn í samstarf. Í fyrra fórum við að sameinast um innflutninginn og höfum því skipt með okkur dreif- ingu,“ segir Valdimar Hermannson, vörustjóri sérvöru hjá Olíufélaginu hf. „Aðalástæða hækkunarinnar er að Royal Oak-vörurnar hækkuðu milli ára frá framleiðanda um rúm 25% til 28%. Sú hækkun kemur síðan ofan á gengislækkunina milli ára. Við áttum birgðir frá því í fyrra og höfum verið að selja viðskiptavinum okkar þær vörur á verði frá því í fyrra ásamt geymslukostnaði en það hefur verið eins konar milliverð. Ný- lega kom síðan ný sending sem tók mið af hækkun frá framleiðanda sem og hækkun á gengi.“ Meðaltalshækkun nemur 8% Sælgætisgerðin Freyja ehf hækk- aði nýverið flestar vörur sínar að meðaltali um 8%. „Af þeim vörum sem hækkuðu má nefna Valencia- súkkulaði, marsipanbrauð og hrís- poka. Ástæða hækkunarinnar er margþætt og má nefna að umbúða- kostnaður hefur hækkað, þá hefur orðið sykurs- og kakósmjörshækkun og síðast en ekki síst lækkun á gengi,“ segir Ævar Guðmundsson, einn af eigendum sælgætisgerðar- innar Freyju ehf. Hann bætir við að fyrirtækið hafi síðast hækkað vörur sínar fyrir rúmu ári. Nýjar vörur hækka að með- altali um 7% Nýlega hækkað Kaupsel hf. allar nýjar vörur hjá sér að meðaltali um 7%. „Af þessum vörum má nefna sjampó og salernispappír en við er- um eingöngu að hækka nýjar vörur, gamlar vörur standa í stað,“ segir Óskar Hansen, eigandi Kaupsels hf. Ástæðuna segir hann megi rekja nánast eingöngu til gengislækkunar. „Við heildsalar getum ekki endalaust tekið hækkanir á okkur og því verð- um við að hækka nú samkvæmt því sem gengið þróast.“ Vilko-vörurnar hækka um 5% Hjá Ó. Johnson & Kaaber ehf. hafa Vilko- og Ota-vörur hækkað sem nemur 5%. Aðspurður segir Al- freð S. Jóhannsson, sölustjóri Ó. Jo- hnson & Kaaber ehf., að fyrirtækið hafi undanfarið verið að hækka vörur hjá sér sem rekja megi til gengis og sé skemmst að minnast 2,9% hækkun á Colgate-vörunum í lok apríl. „Hækkunin er fyrst og fremst vegna kostnaðarhækkana hjá erlendum aðilum sem kemur til vegna gengis. Ég verð þó að geta þess að í fyrsta skipti í gær í langan tíma sá maður breytingar, þ.e. að þetta sé að ganga örlítið til baka. Krónan styrktist um 2 til 3% og það er jákvætt. Miðað við gengi þann 7. maí hefur dollarinn hækkað um 20,85% frá áramótum og pundið um 15,23%,“ segir Alfreð. Aðspurður segir hann að miðað við gengisbreyt- ingar sé fyrirtækið ekki að hækka nóg en verið sé að halda í þá von að að þetta fari að ganga eitthvað niður. „Heildsalan í landinu rekur sig á lít- illi álagningu, þetta er orðin svo mik- il samkeppni við útlönd. Gengið end- urspeglast í þessu, það þarf að fara út í verðlagið,“ segir hann. Allar vörur hækka að meðaltali um 10% Hækkun hjá Sápugerðinni Frigg hf. mun taka gildi um næstu mán- aðamót en þá munu allar vörur fyr- irtækisins hækka um 10% að með- altali. „Við höfum ekki hækkað verð síð- an árið 1998 og einstaka vöruliðir hafa lækkað síðan þá. Við erum í okkar framleiðslu mjög háðir hrá- efninu sem síðan er tengt olíuverði. Síðast en ekki síst er gengið að hrekkja okkur eins og aðra,“ segir Lúther Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Sápugerðarinnar Frigg hf. Hann segir að fyrirtækið hafi ekki átt annars kostar völ en að hækka verð. „Kostnaðarhækkanir hafa einnig átt sér stað á launum starfs- manna og því miður tekur enginn all- ar þessar breytingar á sig,“ segir hann. Vörurnar hækka í verði í lok vikunnar Að sögn Pálma Pálmarssonar, markaðstjóra Globus hf., stefnir allt í að fyrirtækið muni hækka nánast allar vörur sínar í lok vikunnar. „Um þessar mundir erum við að fylgjast náið með genginu. Sá gjald- miðill sem við kaupum mest inn af í dag er dollari en hann hefur á síð- ustu tveimur mánuðum hækkað um tæp 18%. Í dag erum við því að horfa á að innkaupin hjá okkur eru 12–18% dýrari inn á lager en fyrir tveimur mánuðum. Að svo stöddu treysti ég mér ekki til að gefa upp tölulegar upplýsingar um þá verðhækkun sem stendur fyrir dyrum en við reiknum fastlega með því að allar vörur fyr- irtækisins muni hækka. Síðustu ár höfum við verið að vinna með okkar viðskiptavinum á verðlistum sem byggjast á nettóverðum sem þannig eru tengd gengi og því þolum við nánast engar gengissveiflur,“ segir hann. Verðhækkanirnar nema um 7% að meðaltali Allar framleiðsluvörur hjá Sjöfn hf hækkuðu þann 3. maí síðastliðinn um 7% að meðaltali. „Að mestu má rekja hækkunina til gengisins en einnig til hækkunar á hráefnisverði en hráefnisverð er ein- mitt meira og minna tengt olíu- verði,“ segir Kristinn Sigurharðar- son, markaðsstjóri Sjafnar hf. Ýmsar vörur hækka í verði hjá heildsölum um 3–37,7% Gengislækkun helsta ástæða verðhækkana Morgunblaðið/Arnaldur Það eru ýmsar vörutegundir sem hækka í verði, sælgæti, kol, graut- ar, sjampó, salernispappír, og snyrtivörur svo dæmi séu tekin. mbl.isFRÉTTIR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.