Morgunblaðið - 10.05.2001, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 10.05.2001, Qupperneq 33
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 33 FRAMLEIÐNI bandarískra verka- manna minnkaði í fyrsta sinn á sex árum á fyrstu þremur mánuðum árs- ins og launakostnaður fyrirtækja á hvern starfsmann hækkaði verulega, samkvæmt hagtölum sem banda- ríska vinnumálaráðuneytið birti í gær. Hækkun launakostnaðarins getur verið vísbending um að verð- bólgan aukist. Vinnumálaráðuneytið sagði að framleiðni verkamanna hefði minnk- að um 0,1% miðað við heilt ár á fyrsta ársfjórðungnum og það hefði stuðlað að 5,2% hækkun á launa- kostnaði á hvern starfsmann, en hann gefur mikilvægar vísbendingar um verðbólguþrýstinginn. Er þetta mesta hækkun á þessum kostnaði frá síðustu þremur mánuðum ársins 1997 þegar hann hækkaði um 5,5%. Stjórn bandaríska seðlabankans kemur saman eftir viku og hagfræð- ingar búast við því að hún ákveði að lækka vexti frekar til að hamla gegn samdrætti í efnahagnum þrátt fyrir nýju vísbendingarnar um að verð- bólgan kunni að aukast. Dick Cheney varaforseti sagði í samtali við CNN að enn væri hætta á efnahagssamdrætti í Bandaríkjun- um. „Við vitum ekki hvort við stefnum í samdrátt eða hvort við höf- um náð botninum, ef svo má segja, og hagvöxturinn aukist brátt á ný,“ sagði hann. Hætta á samdrætti í Þýskalandi Þýska fjármálaráðuneytið birti í gær hagtölur sem ollu áhyggjum af því að hætta kynni að vera á efna- hagssamdrætti í Þýskalandi, stærsta hagkerfi evru-svæðisins. Ráðuneytið sagði að iðnframleiðsl- an í Þýskalandi hefði minnkað um 3,7% í mars. Hagfræðingar höfðu spáð því að iðnframleiðslan myndi minnka um 1% en hún hafði aukist um 0,6% mánuðinn áður. Hagfræðingurinn Emmanuel Ferry sagði þetta mesta samdrátt í iðnframleiðslu Þýskalands frá janú- ar 1995. „Í mínum huga bendir þetta til þess að samdráttarskeið sé hafið í þýskum iðnaði og búist er við að framleiðslan minnki frekar á fyrstu þremur fjórðungum ársins.“ Hagfræðingurinn Reiner Günter- mann tók í sama streng og sagði nýju hagtölurnar staðfesta að óttinn við alvarlegan samdrátt, að minnsta kosti í iðnframleiðslunni, væri ekki ástæðulaus. Cheney telur enn hættu á samdrætti í Bandaríkjunum Framleiðnin minnkar í fyrsta sinn í sex ár Washington, Frankfurt. Reuters, AFP. Reuters Ljósaskilti, sem sýnir stöðu Nasdaq-vísitölunnar, við Times-torg í New York. Hún og aðrar vísitölur hafa verið á niðurleið í marga mánuði en nú bætast við fréttir um, að framleiðnin hafi minnkað. STUÐNINGUR við Hægri- flokkinn í Noregi hefur aukist mikið að undanförnu og stendur hann nú jafnfætis Verkamanna- flokknum. Eykur það mjög líkur á því, að borgaraflokkarnir muni geta tekið höndum saman í stjórn að loknum þingkosning- unum í september. Ný Gallup- könnun sýnir, að stuðningur við Hægriflokkinn hefur aukist um sex prósentustig frá því í síðasta mánuði og er nú 26,5% eins og við Verkamannaflokkinn. Þess ber þó að geta, að könnunin var gerð í kjölfar landsfundar flokksins. Stuðningur við Verkamannaflokkinn hefur minnkað um 4,5 prósentustig. Helstu baráttumál Hægri- flokksins fyrir kosningar verða að lækka skatta og bæta skóla- kerfið en Verkamannaflokkur- inn leggur áherslu á, að laun- þegar fái full laun í veikindafríi og leikskólagjöld verði lækkuð. Jan Petersen, leiðtogi Hægri- flokksins, segir, að annars muni kosningarnar í haust verða ein- vígi á milli Verkamannaflokks- ins og borgaraflokkanna. Styrkjunum skilað? HUGSANLEGT er, að sjó- menn á Ítalíu og í Hollandi verði að endurgreiða hundruð millj- óna og jafnvel nokkra milljarða íslenskra króna, sem þeir fengu frá ríkinu vegna eldsneytis- hækkana á síðasta ári. Líklegt þykir, að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins komist að þeirri niðurstöðu, að styrkirnir hafi verið ólöglegir en þeir voru hátt í 2,4 milljarðar kr. á Ítalíu rúmlega 550 milljónir kr. í Hol- landi. Til athugunar eru einnig sams konar styrkir í Frakk- landi, Spáni og Belgíu. E-pillustríð í Hollandi STJÓRNVÖLD í Hollandi lýstu í gær yfir stríði gegn framleið- endum og dreifendum e-pillunn- ar. Verður komið á fót þremur að fjórum lögreglusveitum, alls 100 manns, til að berjast gegn glæpalýðnum og hafa rúmlega átta milljarðar íslenskra króna verið lagðir til hliðar í þessu skyni. Talið er, að e-pillufram- leiðslan sé einna mest í Hollandi og þaðan kemur mest af því, sem er á markaði í Bandaríkj- unum. Kútsjma boðar nýja stjórn LEONÍD Kútsjma, forseti Úkr- aínu, sagði í gær, að ný stjórn myndi taka þar við völdum fyrir lok mánaðarins. Hefur landið í raun verið án ríkisstjórnar síðan þingið samþykkti vantraust á Viktor Júshtsjenko forsætisráð- herra og stjórn hans 26. apríl sl. Kútsjma kvaðst mundu bera val sitt á forsætisráðherraefni und- ir þingið 15. maí næstkomandi en hann hefur nefnt nöfn fjög- urra manna, sem hann segir vera sér þóknanlega. Ekki þykir víst, að úkraínska þingið komi sér saman um nýjan forsætis- ráðherra og mikil andstaða er við Kútsjma, jafnt meðal vinstri- sem hægrimanna. Er hann meðal annars grunaður um aðild að morði blaðamanns- ins Georgí Gongadzes. STUTT Horfur á hægrisigri í Noregi BANDARÍSKI rithöfundurinn Gore Vidal varði í gær ákvörðun sína um að vera viðstaddur aftöku Timothys McVeighs, sem olli dauða 168 manna þegar hann sprengdi upp alríkisbyggingu í Oklahoma-borg árið 1995. Vidal kvaðst vera sam- mála McVeigh um að „stjórnvöld gengju berserksgang í Bandaríkj- unum“. McVeigh verður tekinn af lífi með banvænni sprautu í Terre Haute í Indíana á miðvikudaginn kemur. Hann bauð Vidal að vera viðstaddur aftökuna og rithöfundurinn þáði boðið. „Ég held að ég fái ógeð á þessu, ég er á móti dauðarefsingum og ekki með sjúklegt innræti,“ sagði Vidal. „En hann bað mig um þetta og ég sló til, enda erum við sammála um að stjórnvöld gangi berserksgang.“ Rithöfundurinn skírskotaði eink- um til árásar alríkislögreglunnar á bækistöðvar sértrúarsafnaðar í Waco í Texas 1993 sem kostaði rúm- lega 80 manns lífið. McVeigh kvaðst hafa sprengt upp alríkisbygginguna til að hefna þeirrar árásar. „Í fyrsta lagi er ég andvígur dauðarefsingum, í öðru lagi á móti sprengjuárás Timothys McVeighs á fólk í Oklahoma-borg, en ég er enn andvígari Janet Reno dómsmálaráð- herra,“ bætti Vidal við. Reno fyr- irskipaði árás alríkislögreglunnar á bækistöðvar sértrúarsafnaðarins. „Mjög góður og skarpur penni“ Vidal hyggst skrifa grein um af- tökuna fyrir tímaritið Vanity Fair. Hann byrjaði að skrifast á við McVeigh eftir að hafa ritað grein í tímaritið árið 1998 um meint brot á skránni um borgarleg réttindi í Bandaríkjunum. „Hann skrifaði mér og ég heill- aðist af honum,“ sagði Vidal. „Hann er í fyrsta lagi mjög góður og skarp- ur penni og hann hefur mikla þekk- ingu á stjórnarskránni og skránni um borgaraleg réttindi.“ Vidal ætlar að fylgjast með aftöku McVeighs Washington. Reuters. ÞAÐ er niðurstaða könnunar, sem er að vísu harðlega gagnrýnd, að sumt samkynhneigt fólk geti orðið gagnkynhneigt ef það leggur sig allt fram. Stingur þetta í stúf við þá almennu skoðun, að kynhneigðin sé meðfædd og tilraunir til að „lækna“ hana geti haft skaðlegar afleið- ingar. Talsmenn samkynhneigðra hafa farið hörðum orðum um könnunina og bent hefur verið á, að trúfélög, sem fordæma samkynhneigð, hafi bent á marga þeirra 200 manna, sem tóku þátt í könnuninni og áður voru samkynhneigðir. Dr. Robert L. Spitzer, sálfræ- ðiprófessor við Columbia-háskóla, stóð fyrir könnuninni og hann seg- ir, að þótt ekki sé hægt að nefna neinar prósentutölur beri að við- urkenna, að sumt samkynhneigt fólk geti orðið gagnkynhneigt. Ætl- aði hann að kynna niðurstöðurnar á landsþingi Samtaka bandarískra sálfræðinga í New Orleans í gær. Flókið samspil Um þessi mál hefur oft verið deilt en vísindamenn segja, að ekki sé vitað hvað ráði kynhneigð manna. Hafna þeir kenningum um, að sam- kynhneigð megi rekja til erfiðleika innan fjölskyldunnar eða einhverra frávika í andlegum þroska og telja, að um sé að ræða mjög flókið sam- spil líffræðilegra og umhverf- islegra þátta. Spitzer, sem könnunina gerði, átti einna mestan þátt í því 1973, að bandarísku sálfræðingasamtökin hættu að flokka samkynhneigð með geðsjúkdómum og þá hvatti hann jafnframt til rannsókna á því hvort unnt væri að breyta kynhneigðinni. Niðurstöður könnunar hans voru þær, að af 200 samkynhneigðum mönnum, konum og körlum, hefði 143 tekist að breyta hneigðinni og lifa ánægjulegu lífi sem gagnkyn- hneigðir. Aðeins 11% karlanna og 37% kvennanna kváðust þó alveg laus við samkynhneigðar langanir. Marklaus könnun Douglas Haldeman, sálfræðingur við Washington-háskóla, segir, að könnun Spitzers sé marklaus. Bendir hann á, að óeðlilega hátt hlutfall þátttakenda hafi verið hallt undir íhaldssamar trúarkenningar og margir þeirra hafi verið með- höndlaðir af fólki, sem „hefur and- styggð á samkynhneigð“. Það hafi því verið auðvelt fyrir þá að fá á til- finninguna, að samkynhneigð væri ljót og öllu skipti að afneita henni. 43% þátttakenda voru tilnefnd af söfnuðum, sem reyna að hjálpa samkynhneigðum til að breyta sér, og 23% af samtökum, sem stunda það sama og líta á samkynhneigð sem þroskavandamál. Hart deilt á könnun bandarísks sálfræðiprófessors Segir sumt sam- kynhneigt fólk geta breytt sér New Orleans. AP.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.