Morgunblaðið - 10.05.2001, Qupperneq 41
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 41
MÁLARALISTIN á undir högg
að sækja, eða það skilst manni á
íslenskum listamönnum sem fjasa
meira út af málverkinu eins og það
er kallað – í eintölu og með
ákveðnum greini – en allri annarri
myndlist samanlagt. Þó má sjá
hvarvetna blikur á lofti á íslensk-
um myndlistarvettvangi vegna sér-
kennilegs fásinnis og doða þeirra
sem eiga að láta sig menningu
okkar einhverju varða. Í þessari
varhugaverðu deyfð er það þó
einna helst málverkið sem nýtur
einhverrar hylli þó svo að lán þess
sé harla fallvalt ef listamaðurinn
heldur sig ekki rækilega innan
marka hefðbundinnar túlkunar
eins og hún var ákvörðuð á fyrri
helmingi síðustu aldar.
Svona er nú komið fyrir mynd-
listinni hjá þjóð sem alltaf er að
brigsla sjálfri sér um nýjungagirni
en er í raun ósköp forpokuð, gam-
aldags og áhugalaus um allt nema
brýnustu tækninýjungar. Til
marks um stöðuna hefur mótast í
Reykjavík undarlegt neðanjarðar-
kerfi í myndlist sem lifir sínu sjálf-
bæra lífi í Skuggahverfinu án þess
að forsprakkarnir formi það að
reyna fyrir sér ofanjarðar. Hvergi
á Vesturlöndum eru dregin skarp-
ari skil milli grasrótarinnar í
myndlist og hinna sem almenningi
eru þóknanlegir, hvorki í aðstöðu
né viðhorfum. Hvarvetna er vegur
listamanna hraðfleygari og tengsl-
in auðsóttari milli grasrótar og
virtustu safna.
Nú hefur Gula húsið tekið við af
Nýlistasafninu – báðir staðirnir
eru í Skuggahverfinu – sem bið-
stöð róttækustu viðhorfa í mynd-
list, eða svo mætti ætla. Ef um
leikhús væri að ræða teldist Gula
húsið vera Off, off Broadway, með-
an Nýlistasafnið væri bara Off
Broadway. Ekkert í sýningahaldi
þessara húsa er þó svo róttækt að
annað eins sjáist ekki í virðuleg-
ustu söfnum á Vesturlöndum. Í
Tate Modern, Museo de Reina
Sofia, Centre Pompidou, Kiasma,
Moderna Museet og Hamburger
Bahnhof í Berlín eru sýningar
ekkert minna róttækar en í Ný-
listasafninu eða Gula húsinu, síður
en svo. Munurinn er sá að þar er
nýja bruminu ekki stöðugt haldið
neðanjarðar.
Það er vert að hafa þetta í huga
þegar gengið er um ganga Gula
hússins á sýningu Lonu Daggar
Christensen, Hildar Margrét-
ardóttur og Huldu Vilhjálmsdótt-
ur. Allar nýta þær blandaða tækni
með málaralist sinni og tekst þeim
að gera sameiginlega sýningu sem
býr yfir miklum möguleikum, létt-
leik og krafti. Til dæmis mála þær
Lona, Hildur og Hulda þannig að
hvergi vottar fyrir kyrkingi né
snemmbúinni þreytu í tækni
þeirra. Þær eru hreinlega úti eftir
möguleikum í staðinn fyrir að láta
hefðina hefta sig um of.
Þá gera þær ýmsar tilraunir,
bæði innan rammans og utan, sem
auðvelt er að sjá sem vegvísa til
frekari þróunar. Svarttöflumálverk
Hildar eru dæmi um slíka mögu-
leika, sem og verk Huldu sem
skiptast gjarnan í fleiri hluta,
klasa eða grúppur, vísast undir
óbeinum áhrifum myndasögunnar.
Þá er myndvarp Lonu af látinni
konu, niður kjallarastigann, prýð-
isgott dæmi um athyglisverða nýt-
ingu rýmisins. Sameiginlega vinna
vinkonurnar þrjár svo myndbands-
verk í kjallaranum sem þær kalla
Fílapensilinn. Baksviðið er sjoppa
í miðbæ Reykjavíkur og undir er
spiluð gömul dægurtónlist.
Þótt vissulega minni heiti mynd-
bandsins á titil samsýningar nokk-
urra annarra listmálara á Kjar-
valsstöðum, og listakonurnar geri
jafnframt góðlátlegt grín að sjálfs-
mynd Nerdrum með fullri reisn,
þá stendur sýning þeirra fyllilega
fyrir sínu sem sjálfstætt framlag
óháð þessum skondnu tilvísunum.
Pensillinn
lengi lifi!
MYNDLIST
G u l a h ú s i ð ,
L i n d a r g ö t u
Til 13. maí. Opið föstudaga til
sunnudaga frá kl. 16–19.
MÁLVERK &
BLÖNDUÐ TÆKNI
LONA DÖGG
CHRISTENSEN,
HILDUR MARGRÉT-
ARDÓTTIR &
HULDA VIL-
HJÁLMSDÓTTIR
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Eitt af verkunum á sýningu
þeirra Lonu, Hildar og Huldu í
Gula húsinu, Lindargötu. Halldór Björn Runólfsson
JÓRUKÓRINN og Karlakór
Selfoss halda sameiginlega
tónleika í Ými, við Skógarhlíð,
annað kvöld, föstudagskvöld,
kl. 20.30.
Jórukórinn er skipaður 48
konum sem búa á Selfossi og í
nágrenni. Stjórnandi er Hel-
ena Káradóttir og undirleikari
Þórlaug Bjarnadóttir. Kórinn
syngur hefðbundin sönglög,
djass og dægurlög, erlend og
innlend.
Karlakór Selfoss er skipað-
ur rúmlega 50 körlum. Stjórn-
andi er Loftur Erlingsson og
undirleikari Helena Káradótt-
ir. Þeir flytja ný og eldri
karlakórslög.
Sunnlensk-
ar karla-
og kven-
raddir
í Ými