Morgunblaðið - 10.05.2001, Page 78
78 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
SUMIR eru miklir mannþekkjarar
og geta á augabragði séð persónur
manna út. Aðrir geta sjaldan eða
aldrei metið persónu rétt við
fyrstu kynni.
Mannþekkjarar geta ekki annað
en séð kosti eða galla fólks, rétt
eins og aðrir geta ekki annað en
séð stafsetningarvillur. Það er ein-
hvern veginn í eðlinu.
Hvað er það sem veldur því, að
þegar nokkrar manneskjur hittast,
þá metur engin þeirra hina eins?
Ef allar okkar athafnir eru skila-
boð, af hverju skilja ekki allir
skilaboðin eins? Hvað er það sem
hefur mest áhrif?
Það skiptir miklu máli að vita
hverjum þú getur treyst. Fyrir
það fyrsta finnst okkur mikilvægt
að geta varað börnin okkar við
hinu illa.
Nú er þægilegt að vitna í barna-
efnið en þar er auðvelt að þekkja
þessa vondu úr, þeir eru ljótir,
með grimma og freka rödd og oft
illa til fara. Þessir góðu eru fal-
legir, sakleysislegir, með ljúfa og
þægilega rödd og vel klæddir.
Þarna er kennt að dæma eftir út-
litinu.
Eftir þessari forskrift eiga börn
ekki í neinum vandræðum með að
dæma rétt. Hlutirnir verða ekki
flóknir fyrr en allt hefur snúist við
og þessir fallegu með ljúfu og
þægilegu röddina eru orðnir þessir
vondu og hættulegu og öfugt.
Við erum alla daga að velja eitt-
hvað og taka ákvarðanir með líf
okkar. Því miður er heimurinn
þannig í dag, að maður þarf ekki
að vera barn til að ruglast í rím-
inu.
Hvorn mundir þú velja?
Tökum sem dæmi: Tveir menn
eru að bjóða sig fram sem leiðtoga
lífs þíns. Þú veist ekkert um bak-
grunn þeirra en verður að velja á
milli. Þú hefur ekki mátt vera að
því að kynna þér þá nánar, þess
vegna verðurðu að dæma eftir lýs-
ingum sem aðrir gefa upp.
Fyrri lýsingin er svona: „Hann
var hvorki fagur né glæsilegur, að
oss gæfi á að líta, né álitlegur, svo
að oss fyndist til um hann. Hann
var fyrirlitinn og menn forðuðust
hann, harmkvælamaður og kunn-
ugur þjáningum, líkur manni sem
menn byrgja andlit sín fyrir og vér
mátum hann einskis.“ Og, „Hann
var hrjáður, en lítillætti sig og
lauk eigi upp munni sínum.“ (Jes:
53. kafli).
Hin lýsingin er þannig: „Þú
varst ímynd innsiglishrings, fullur
af speki og fullkominn af fegurð.
Þú varst í Eden, aldingarði Guðs,
þú varst þakinn alls konar dýrum
steinum: karnól, tópas, jaspis,
krýsolít, sjóam, onýx, safír,
karbunkul, smaragð, og umgjörðir
þínar og útflúr var gjört af gulli.“
(Esk. 28, 12/13).
Hvílíkur munur á þessum lýs-
ingum, sem eru umbúðir sálarinn-
ar. Þær eru mismunandi þessar
umbúðir sem við berum alla ævi,
hvort sem okkur líkar það betur
eða verr. Það eru þessar umbúðir
sem eru dæmdar af öðrum og villa
oft sýn í fyrstu. Í Biblíunni eru
þessar umbúðir kallaðar musteri
sálarinnar. Við vitum að það er
innihaldið sem skiptir meira máli
en útlitið. En samt, þegar við t.d.
gefum gjöf, þá skiptir það flesta
töluverðu máli að pakka fallega
inn, að útlitið sé fallegt.
Þekkirðu Krist?
Þeir sem þekkja orðið, þekkja
Krist og Lúsifer af þessum lýs-
ingum. Ef þú þekkir ekki Krist, þá
ertu í vanda ef þú þarft að velja
snögglega á milli.
Ef þú stæðir allt í einu á tíma-
mótum í lífi þínu og yrðir að velja.
Hvorn kýstu? Því miður eru mikl-
ar líkur á að þú, og ótal margir
aðrir, falli fyrir fegurðinni. Eink-
um vegna þess að okkur finnst að
allt guðdómlegt eigi að vera fallegt
og gott. En þó lærðum við það
einu sinni, sem vill gleymast, að
Lúsifer var fallegasti engillinn á
himnum. Hann var fullur af speki
og fullkominn af fegurð.
Fullur af speki segir okkur að
hann þekkti og þekkir enn ritn-
inguna vel. Með fegurð og speki er
auðvelt að blekkja auðtrúa mann.
Við þekkjum öll máltækið: Oft er
flagð undir fögru skinni. Guð faðir
hefur ekki viljað blekkja okkur
með fegurð.
Lýsingin á Kristi (í 53. kafla
Jes), hann var hvorki fagur né
glæsilegur, er ekki til að hrífa
mann með sér.
Lýsingin er ekki þannig að mað-
ur sjái þarna leiðtoga lífsins. Sjálf-
ur konungur alheimsins hefur litið
út eins og almúginn var á þeim
tíma, borðaði með þeim og átti
svipaðan svefnstað. Það var engin
silfurskeið í hans munni.
Það sannaðist það sem Guð sá
fyrir, Kristur var hæddur og
smáður af mannkyninu, þrátt fyrir
kenningarnar og kraftaverkin.
Fólk var ekki blekkt með fegurð
eða fagurgala og hann hafði sam-
neyti við þá sem aðrir töldu glat-
aða syndara. Þannig undirstrikaði
hann að boðskapurinn var og er
fyrir alla, háa og lága, ríka og fá-
tæka. Allir hafa tækifæri til að
þiggja náðargjöfina.
Við mennirnir getum blekkt
hver annan en Drottin almáttugan
blekkjum við ekki. Ekki láta
blekkja þig, veldu eftir innihaldi
en ekki útliti og leyfðu trúnni á
Jesú Krist að blómstra í hjarta
þínu. Gerðu ekki þau mistök eins
og svo margir gera á okkar tímum,
þ.e. að telja að það sé nógur tími.
Hugsaðu þér ekki að ætla að taka
ákvörðun á síðustu stundu. Veistu
hvað það kostar þig í raun og veru,
ef þú tekur í flýti ranga ákvörðun?
Þú ert svo óendanlega verðmæt
manneskja í augum Drottins að
hann var tilbúinn að deyja á
Golgata fyrir þig.
Veldu Krist strax í dag.
BRYNDÍS SVAVARSDÓTTIR,
Háhvammi 9, Hafnarfirði.
Mannþekkjari
Frá Bryndísi Svavarsdóttur: