Morgunblaðið - 10.05.2001, Side 83
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 83
NÝJAR VÖRUR VIKULEGA
SPENNANDI HELGARTILBOÐ
COWEY BOLUR KR. 1.990
MILO GALLABUXUR KR. 4.990
. . EASE BOLUR KR. 1.790
LAUGAVEGI 97 OG KRINGLUNNI
MILO GALLAKJÓLL KR. 6.490
lenskir meðlimir félagsins unnu
hörðum höndum að skreytingu
vagnsins og uppskáru fyrir erf-
iðið tvenn verðlaun að hátíð-
arhöldum loknum. Verðlaunin
voru annars vegar fyrir bestu
blómaskreytinguna og hins vegar
fyrir bestu alhliða útfærsluna.
Áfram Íslendingar í Ameríku!
AZALEA-hátíðin fór fram í bæn-
um Norfolk í Bandaríkjunum. Ís-
lensk-ameríska félagið þar í bæ
tók þátt í skrúðgöngunni sem
fylgir þessum degi eins og má sjá
á eftirfarandi myndum. Dreginn
var vagn sem minna átti á vík-
ingaskip og að sjálfsögðu voru al-
vöru víkingar þar innanborðs! Ís-
48. Azalea-hátíðin í Norfolk
Víkingar í
vesturheimi
Íslendinga-
skipið var
voldugt eins
og sjá má.
Bræðurnir
Andri og Krist-
ján Jónssynir
létu fara vel um
sig í skipinu og
eins gerði
Tanja Þor-
steinsdóttir.
HVER hefði trúað því fyrir nokkr-
um árum að vinsælasta hljómsveitin
á Íslandi árið 2001 yrði þýska of-
urrokksveitin Rammstein? Ekki
nokkur maður.
Það má segja að ég hafi verið í
nokkuð góðri aðstöðu til að fylgjast
með vexti hljómsveitarinnar hér á
landi frá því að Jói í Japis (nú í 12
tónum) stökk á mig með fyrsta disk-
inn þeirra, Herzeleid, fyrir u.þ.b.
fimm árum síðan og sagði að ég yrði
að hlusta á þetta. Ég stakk disknum
í og fattaði strax af hverju Jóa var
svona umhugað um að ég heyrði í
þessari þýsku hljómsveit. Stíllinn
minnti jú óneitanlega á þá hljóm-
sveit sem ég hafði starfað með
nokkrum árum áður og nefndist
Ham. Skemmtileg tilviljun, hugsaði
ég og keypti diskinn af Jóa. Því næst
fór ég að spila hann í útvarpsþætt-
inum Tvíhöfða á X-inu og allir
þekkja framhaldið; Rammstein sló í
gegn. Sehnsucht kom svo út haustið
1997 og var betri en sú fyrri og nú er
komið að þeirri þriðju og að mínu
mati bestu, Mutter. Hún sannar að
Rammstein eru vaxandi tónlist-
armenn en ekki bara snjallir popp-
karlar sem hjakka í sama farinu.
Ekki má þó skilja þetta þannig að
um einhverja tónlistarlega kúvend-
ingu sé að ræða. Yfirbragðið er svip-
að og áður en tónsmíðarnar eru að
mörgu leyti betri. Þær eru djúp-
hugsaðri eins og við heyrum t.d. í
„Sonne“ sem er að mínu mati besta
lagasmíð hljómsveitarinnar frá upp-
hafi.
Mutter byrjar á „Mein herz
brennt“ sem gefur tóninn fyrir það
sem koma skal. Vel smíðað lag sem
hefst á ljúfum strengjahljómum en
breytist síðan í þungt og kraftmikið
rokklag. Því næst heyrum við
„Links 234“, sem nýlega var gefið út
á smáskífu. Þar heyrum við að
Rammstein hefur ekki gleymt ein-
faldleikanum þrátt fyrir flóknari
hugsun í öðrum lögum. Snilld-
arverkið „Sonne“ kemur þar á eftir
með öllum sínum þunga. Af-
spyrnugóð smíð, eins og áður sagði,
margslunginn stígandi í einfaldri yf-
irbyggingu. „Ich will“ er gott popp-
lag og í kjölfarið siglir kraftmikið
keyrslurokk, „Feuer frei“ sem að
mínu mati gæti sómt sér vel á næstu
smáskífu sem og næsta lag á eftir,
titillagið „Mutter“. Strákarnir í
Rammstein hafa haft fyrir sið að
bjóða upp á eina ballöðu á plötum
sínum og þarna tekst þeim best upp
að mínu mati. Næst kemur lag sem
heitir „Spieluhr“ og þar verð ég því
miður að segja að þeim þýsku fatist
flugið. Tvímælalaust lélegasta lag
plötunnar en sem betur fer það eina
sem ekki er gott. Risið hefst síðan
aftur í „Zwitter“ og upp í nýjar hæð-
ir í „Rein Raus“. Verkinu líkur svo á
hinum ágætu „Adios“ og „Nebel“.
Meðlimir Rammstein virðast vera
skemmtilega á skjön við aðra popp-
tónlistarmenn og má kannski finna
skýringuna í bakgrunni þeirra en
þeir eru allir aldir upp austan megin
við þýska járntjaldið fyrrverandi.
Þeir hafa tekið annan pól í hæðina
en landar þeirra í vestri og hafa
kannski annað gildismat. Þeir eru
fókuseraðir og vandvirkir en halda
sér samt í stöðugri þróun án þess þó
að svíkja aðdáendur sína. Þeir hafa
sitt persónulega „sánd“ þó svo að
greina megi áhrif héðan og þaðan.
Þeir hafa sjálfir viðurkennt að vera
undir áhrifum frá t.d. slóvensku
hljómsveitinni Laibach og þar held
ég nú að Ham-samlíkingin eigi upp-
runa sinn. Við vorum nefnilega líka
undir áhrifum frá þeirri ágætu sveit.
Rammstein náði hins vegar því sem
hvorki Ham né Laibach náðu á með-
an þær lifðu; að selja plötur.
ERLENDAR
P L Ö T U R
Sigurjón Kjartansson
Tvíhöfði, fyrrverandi Ham-
liði og Rammstein-trúboði
skrifar um Mutter,
þriðju hljóðversskífu
þýsku Rammstein.
Rammstein leggur á ráðin.Þýsk gæðavara