Réttur


Réttur - 01.07.1951, Side 46

Réttur - 01.07.1951, Side 46
190 RÉTTUR komulag um að skiptast á framleiðsluleyndarmálum og skipta mörkuðum heimsins á milli sín. Hið þýzka félag fékk í sinn hluta markaðina í þessum löndum: Hollandi, Ind.nesíu, Austurríki, Póllandi, Eystrasaltsríkjunum, Finnlandi, Búlgaríu, Júgóslavíu, Danmörku, íslandi og sænska Lapplandi. En það gerðist einnig annar hlutur um leið. Engilsaxnesku hringarnir keyptu 40% hlutabréfanna í hinu þýzka félagi D.A.G. og hófst þannig nýr dollarastraumur inn í sprengiefnaiðnaðinn þýzka. Við getum hugsað okkur hvaða þýðingu það hafði fyrir hernað þýzku nazistanna síðar. Og svo þegar sjálfur risinn fæddist, þ. e. þegar þýzki risahringurinn I. G. Farben, var stofnaður, þá gekk sprengiefnahringurinn inn í hann sem hluti þessarar tröllauknu samsteypu, er allt frá byrjun stefndi að stríðsframleiðslu í gífur- legum mæli. Þegar samningum um þetta var lokið komst fulltrúi hinna brezku fyrirtækja svo að orði í skýrslu til stjórnar sinnar: „í þessum samningum hafa Þjóðverjar hagað sér mjög skyn- samlega. Okkur hefur tekizt að ná samkomulagi sem tryggir okkur að þeir falla frá allri samkeppni á hinum brezku mörkuðum um 5 ára skeið. Og ég er sannfærður um að við getum framlengt þetta tímabil í 10 ár ef við sameinumst þeim fjárhagslega . . .“ „Ég er enn fremur sannfærður um, að þetta mun styrkja aðstöðu okkar verulega á hinum ýmsu útflutningsmörkuðum og veita okkur tækifæri til að græða miklu meira fé en í samkeppninni." En þess var ekki getið, að þetta samkomulag var einn af fleinum þeim, er sífellt var verið að reka í gegnum þau ákvæði Versala- samninganna, er einmitt áttu að vernda friðinn. Almenningur í Bretlandi hefði átt að vita betur hverjum hann mátti þakka sprengjuregn stríðsáranna. Margir menn vilja halda því fram að hér hafi aðeins fámennar klíkur verið að verki og fjarstæða sé að ímynda sér að sjálf lýðræðisríki hins vestræna heims hafi látið sér til hugar koma

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.