Réttur - 01.07.1951, Blaðsíða 87
BRYNJÓLFUR BJARNASON:
INNLEND VÍÐSJÁ
Sigursælt verkfall.
1 síðustu víðsjá er nokkuð lýst aðdraganda og undirbún-
ingi verkfallsins, sem hófst 18. maí s.l. vor. Er það víð-
tækasta verkfall sem fram til þessa hefur verið háð hér á
landi, stóð aðeins 4 daga og varð sigursælt. TJrslit urðu þau,
að frá 1. júní skyldi greiða verðlagsuppbót á vinnulaun,
þannig að kaupgjald breyttist á ársfjórðungsfresti sam-
kvæmt kaupgjaldsvísitölu. Gildir þetta að fullu fyrir öll
laun, sem ekki eru hærri en lágmarkslaun Dagsbrúnar-
manna, eða mánaðarlaun Iðju, 1830 kr. grunnlaun á mánuði,
og fyrir sömu upphæð af kaupi þeirra, sem hærra eru laun-
aðir. Enda þótt þetta væri mikill hagsmunalegur sigur, vissu
allir að það mundi endast skammt. Af hálfu stjórnarvald-
anna er unnið kappsamlega að því að gera þessar kjara-
bætur að engu á sem skemmstum tíma. En þetta var jafn-
framt stórpólitískur sigur, einn hinna stærstu, sem unninn
hefur verið af íslenzkum verkalýðssamtökum. Baráttan
stóð um markaða stefnu íslenzku marshallflokkanna og
hinna vestrænu yfirboðara þeirra. Og þeir urðu að láta und-
an síga. Eftir þennan sigur og að fenginni reynslu þessarar
lærdómsríku deilu, er vígstaða samtakanna öll önnur en
áður. Verður ekki f jölyrt frekar um það hér, þar sem saga
deilunnar er rakin í ýtarlegri grein eftir Guðmund Vigfús-
son, sem birtist í þessu hefti.
Nýtt hernám.
I þáttum síðasta heftis var skýrt frá hótunum Bjarna
Benediktssonar um nýtt hernám og ummælum hans um