Réttur


Réttur - 01.07.1951, Side 93

Réttur - 01.07.1951, Side 93
RÉTTUR 337 öll þau stjómmálafélög, sem eigi eru ánetjuð erlendu né innlendu auðvaldi, þurfa að taka höndum saman um að leiða hið unga lýðveldi vort að nýju til þjóðfrelsis og vel- megunar. 1. Hlutverk slíkrar samfylkingar verður að berjast fyrir þjóðfrelsi og lýðfrelsi. Hún verður að kref jast þess og vinna að því: AÐ íslendingar lýsi yfir skýlausum friðarvilja og ævarandi hlutleysi í ófriði, AÐ allur erlendur her verði tafarlaust fluttur burt af landi voru, íslandi, AÐ þjóðin endurheimti þegar sjálfsforræði sitt í stjómarhátt- um og efnahagsmálum, AÐ hverskonar einokun í atvinnu og verzlun verði þegar af- létt og íslendingum gert frjálst að skipta við allar þjóðir heims, AÐ allt íslenzkt athafnalíf verði verndað gegn yfirráðum er- lendra auðhringa og bankastarfsemi ríkisins að fullu tek- in í þjónustu þjóðarinnar, AÐ hrundið verði þeirri einokun og skriffinnsku er nú gerlamar atvinnulífið og er raunar ein af aðferðum hins erlenda auð- drottnunarvalds til þess að gera sér það sem háðast, AÐ Alþingi Islendinga verði verndað gegn einræðisáformum þeirra innlendra stjórnmálamanna, er ganga erinda fram- 'andi valds, AÐ íslenzk lýðréttindi verði vernduð gegn hverskonar árásum innlends sem erlends afturhalds. 2. Hlutverk slíkrar samfylkingar verður að berjast fyrir gernýtingu íslenzlíra auðlinda. Hún verður að krefjast þess, og vinna að því: AÐ landhelgi Islands miðist við landgmnnið og verði hagnýtt fyrir Islendinga eina, AÐ gerbréytt verði um stefnu i lánsfjármálum þjóðannnar og

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.