Réttur - 01.07.1951, Page 94
238
RETTUR
ýtt undir hraðvaxandi framleiðslu innanlands og fullkomna
hagnýtingu vinnuafls og tækja,
A£) nýsköpun sjávarútvegs og landbúnáðar verði upp tekin
að nýju í stáð þeirrar stöðvunar. sem átt hefur sér stað
að undanförnu,
AÐ auknum krafti verði einbeitt að eflingu heilbrigðs innlends
iðnaðar og sköpun stóriðju á grundvelli mikilsháttar
vatnsvirkjana,
AÐ leitað verði til alþýðuríkjanna um kaup á nauðsynlegum
tækjum til slíkrar stóriðju í skiptum fyrir íslenzkar af-
urðir, t- d. áburð, sem framleiddur yrði til útflutnings —
að svo miklu leyti sem ekki fengjust lán til framkvæmd-
anna, án pólitískra skilyrða, á hinum almenna peninga-
markaði auðvaldslandanna.
3.
Hlutverk sh'krar samfylklngar verður að berjast fyrir
auknu afkomuöryggi.
Hún verður að kref jast þess og vinna að því:
AÐ öllum íslendingum, sem vinna vilja, verði tryggð atvinna,
AÐ launakjör verkamanna og annarra launþega verði stórum
bætt frá þvi, sem nú er, og upp tekin hin nánustu sam-
ráð við verkalýðssamtökin um öll þau mál, er atvinnu
og launagreiðslur varða,
AÐ skemmdarverk þau er unnin hafa verið á sviði félagsmála
hin síðustu ár verði stöðvuð og leiðrétt og upp tekin að
nýju .stefna umbóta og framfara í tryggingarmálmn al-
þýðu, og verði þar sérstök áherzla lögð á fullkomnar at-
vinnuleysistryggingar í samræmi við tillögur Sósíalista-
flokksins á Alþingi,
AÐ húsnæðismálin verði, svo sem fyrirhugað var með löggjöf-
inni frá 1946, leyst með samfelldum aðgerðum til út-
rýmingar heilsuspillandi íbúðum og húsnæðisaukningar,
af hálfu bæja og sveitafélaga, byggingafélaga verka-
manna, byggingasamvinnufélaga og einstaklinga með
raimhæfri aðstoð ríkis og banka.