Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1968, Side 16

Náttúrufræðingurinn - 1968, Side 16
124 NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN Markarfljótsdalurinn er eflaust að miklu leyti grafinn af skrið- jökli á ísöld. Við getum kallað hann „Markarfljótsjökulinn“, því að aðfangasvæði hans féll nokkurn veginn saman við núverandi vatnasvið Markarfljóts. Ætla má, að langt fram á síðasta jiikulskeið hafi sá jökull löngum fyllt dal sinn upp á barma. En þar kom, er dalurinn dýpkaði, að brúnir hans tóku að skaga upp úr. Og enn um sinn svarf Markarfl jótsjökullinn dalgrunninn og neðanverðar hlíðarnar, unz hann tók upp í batnandi veðurfari ísaldarlokanna. Norðurlilíð Markarfljótsdalsins — Fljótshlíð og undirhlíðar Tind- fjallajökuls — ber enn glögg merki eftir svarf Markarfljótsjökulsins, því að þar er gnægð heflaðra klappa með rákum, sem stefna vestur. Líkt er þessu farið um vesturenda suðurhlíðarinnar upp af Merkur- bæjunum í dalmynninu. En þegar innar kemur í dalinn þeim meg- in, eru þessi merki með öllu horfin. Þar er hlíðin öll hin hrjúfasta, sundurskorin af hrikalegum giljum. Þessi mismunur stafar fyrst og fremst af því, að á fyrrnefndum stöðum er jafnharðara berg (eldri grágrýtismyndunin“), en í innanverðri suðurhlíðinni er móbergs- myndunin, yfirleitt lin og þó mishörð. Gilin eru ungar myndanir, flest grafin af lækjum, eltir að Mark- arfljótsjökullinn var horfinn. En brattar skriðjökulstungur frá Eyja- fjallajökli hafa þó stundum teygzt niður í sum þeirra og víkkað þau. Svo er enn ástatt um Falljökul og Steinholtsjökul, enda mega nú farvegir þeirra, einkum hins síðarnefnda, fremur heita dalir en gil. Á fyrstu áratugum þessarar aldar og allt fram til 1930 náðu báðir þessir jöklar nokkuð út frá fjallsrótum og sporðar þeirra belgdust upp í háa ísbunka niðri á jafnlendinu. Þá gengu og jökultotur niður í mörg gil í fjallsbrúninni og langt niður í lrlíðar. Þessir smájöklar hafa nú allir hörfað upp fyrir brúnina, en hinir stærri, Falljökull og Steinsholtsjökull, færzt að brekkurótum, og eru nú djúp vötn, Jökullón (við Falljökul) og Steinsholtslón, þar sem sporðar þeirra lágu áður. Síðastliðið sumar renndi ég lóði í Jökullón af jökulsporð- inum og fann þar mest dýpi 41 m. Skeifulaga ruðningskambur, hár og brattur, utan að Jökulóni markar nú mestu framsókn Falljökuls, en miklu minni ruðnings- garðar á Suðurhlíðum fram undan Steinsholtsjökli sýna, að Steins- holtsjökull hefur rýrnað að sama skapi. Um 1930 mun sporður Falljökuls hafa nokkuð verið farinn að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.