Samvinnan - 01.03.1929, Page 99
SAMVINNAN
93
gerðin þar þær afleiðingar, að minna er keypt inn af er-
lendri vefnaðarvöru en ella myndi. Ennfremur er venju-
lega meira til framleiðslunnar vandað, þegar vélanotkun
á sér stað, heldur en annars væri gert. Stafar það bæði
af því, að með vélum má vinna sum verk betur en á annan
hátt, og einnig vinna verk, sem enganveginn væri hægt að
gera öðruvísi. Samfara vélanotkun er venjulega fullkom-
in verkaskipting, og þá veljast til hvers starfs þeir menn,
sem bezt eru til þess verks fallnir, og af því þeir vinna
altaf sama verkið, ná þeir æ betri tökum á því. Það á sinn
þátt í því að vanda framleiðsluna.
En þetta er nú aðeins betri hliðin. Hin hliðin er líka
til. Sú hlið snýr einkum að verkafólki, að sumu leyti að
verkamönnum yfirleitt, og sumpart eingöngu að þeim,
sem í verksmiðjunum starfa. Við skulum fyrst athuga
hvaða áhrif aukinn verksmiðjurekstur getur haft til hins
verra á afkomu verkamannastéttarinnai' í heild. Þau eru
aðallega tvennskonar. í fyrsta lagi kemur aukinn verk
smiðj urekstur í höndum einstaklinga því til leiðar, að
fjármagnið safnast á fæm hendur. Við það vei'ða verka-
menn háðari. Eftir því sem atvinnurekendurnir eru færri
c-g sterkari, því erfiðara eiga verkamenn með að beita
sér gegn þeim, og hafa í færri hús að venda til þess að
leita sér atvinnu. í öðru lagi getur aukin vélanotkun vald-
ið atvinnuleysi. Þetta síðarnefnda hefir löngum vakið ó-
vild verkamanna gegn aukinni vélanotkun.
Þvínæst er að athuga verksmiðjuiðnaðinn frá sjónar-
miði þeirra, sem að honum starfa. Yfirleitt mun ekki
hægt að segja, að kaup og vinnutími sé verkamönnum
nokkuð óhagstæðara við verksmiðjuvinnu en í mörgum
öðrum atvinnugreinum. Enda leggja andstæðingar véla-
vinnunnar ekki svo mjög áherzlu á þau atriði, heldur eink-
um á vinnuna sjálfa. Þeir telja það höfuðókost hennar, að
hún sé of einhæf. Það er venja í stórum verksmiðjum, að
sami maður vinnur alltaf sama verkið. Sé verkið þannig,
að það reyni eingöngu á einhvem vissan líkamshluta, en
ekkert á aðra, getur það auðveldlega haft einhver van-