Samvinnan - 01.03.1929, Blaðsíða 100

Samvinnan - 01.03.1929, Blaðsíða 100
94 S A M V 1 N N A N skapandi áhrif, ekki sízt ef böm eða ungling-ar eiga í hlut. En þó er talið, að hættan af þessu einhæfa starfi geti orðið enn meiri fyrir sálarlíf mannsins, sem að því vinnur. Þegar hann vinnur sama starfið, endurtekur sömu hreyfingu dag eftir dag og ár eftir ár, getur hann sljófgast smátt og smátt, unz hann vinnur alveg eins og vél, hugsunarlaust og ósjálfrátt. Þetta hefir meir en nokk- uð annað vakið óbeit manna gegn verksmiðjuvinnu, og hefir líka átt mikinn þátt í þvi að koma þeirri skoðun inn hjá mörgum hér á landi, að erlendur verksmiðjulýður sé menntunarlaus skríll. Því verður og ekki neitað, að mörg vélavinna er mjög einhæf, en það er ekki nema stundum, sem hún sljófgar. Þvert á móti krefst mikill hluti véla- vinnunnar sívakandi athygli og umhugsunar og getur þá oft farið svo, að hættan liggi ekki í sljófgun, heldur of mikilli taugaáreynslu. En er því svo mikil hætta samfara, þótt verkið sé þannig vaxið, að verkamaðurinn sé ekki neyddur til þess að hafa hugann alltaf við það bundinn? Er ekki einmitt hætt við því, að þeir, sem alltaf verða að hafa hugann fastan við starfið, sem þeir vinna, verði um of bundnir við það eitt, og hugsi varla um nokkuð annað ? Það út af fyrir sig, að verkamaðurinn þurfi ekki alltaf að leggja sál sína í starfið, ætti ekki að verða mjög hættu- legt. Hann getur þá frekar beint huganum að einhverju öðru efni, hugsað yfirleitt um hvað sem hann vill, annað en það, sem hann gerir. En sé það samt svo, að vélavinna sé vfirleitt sljófgandi, ætti að mega draga úr þeim áhrif- um með ýmsu móti. T. d. ætti þess ekki að vera nein þörf, að sami maður ynni ætíð sama verkið, heldur gæti menn skipzt á, a. m. k. um öll hin auðveldari störf. F o r d gefur t. d. verkafólki sínu kost á því að skipta um starfa, þegar það æskir eftir því. Ennfremur mætti gefa verka- fólkinu tækifæri til þess, að nota hvíldartíma sinn á þann hátt, að það geti vegið upp á móti sljófgun vélavinnunnar. Engu síður er það mikið alvörumál, að verksmiðju- vinna er venjulega óhollari heldur en almenn vinna. Hún fer að mestu leyti fram innan húss, í misjafnlega góðu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.