Samvinnan - 01.06.1973, Page 46
ekki í hönd verkamannsins nema þegar
hann þarf að bera hönd hans að munni
sér þegar hinn mikilhæfi hobtaýkommi
þarf að hósta.
í þágu hverra skyldi sú fráleita tiltekt
vera, að bjóða verkamanni fræðslu á
kvöldin eftir 10 stunda vinnudag? Er
honum of gott að dotta útkeyrður heima
hjá sér á kvöldin? Langsóttar hljóta hug-
myndirnar um vinnuna að vera. Eru dag-
laun og vinnutími ekki höfuðatriðin leng-
ur? Að minnsta kosti hefur verkalýðsfor-
ustan ekki minnstu hugmynd um slíka
hluti, því að sjálf verkalýðsforustan
gengst fyrir því að staðla þrældóminn
með samningamakki um ákvæðisvinnu,
einni hinni hörmulegustu útgáfu af
mannlegri niðurlægingu, þegar menn eru
ginntir með peningum til að starfa eins
og vélar.
Huldufólkið sem lifir opinberu lífi á
herðum verkalýðsins á ekki nema eina
refsingu skilið: að lifa sjálft á launum
verkamannsins. Jafnframt væri hægt að
gera þessum glamrandi hugmyndafræði-
legu þjóðfélagsmönnum þann greiða að
senda þá á vertíð og i frystihúsin og aðra
vinnustaði til að fá jarðsamband.
Satt bezt að segja tóra vinstrimenn í
svo þröngum og sundurlausum jábræðra-
hópum, þessum ófrjósömu hallærisklík-
um, að það þarf óhemju auðtrúa mann
til að gleypa við þeirri slummu, að mann-
legt rottueðli jafngildi vinstristefnu í
pólitísku menningarlífi. Dýrkun á menn-
ingarlegri útþynnslu og einfeldingsleg-
um patentlausnum ex nauðaómerkileg
pólitik.
Smánarblettur
Meðan vinstriöflin eru enn sundur-
laust púsluspil, meðan vinstrisinnaður
verkalýður skipar sér ekki í einn flokk,
þá er pólitík hans pat út í loftið. Það
er verkalýðnum dýrkeypt, að fullkomn-
ustu flokksvélarnar skuli vera rammasta
íhald. Og það er kaldhæðnislegt, að þar er
einmitt eininguna að finna í stórátökum
eins og kosningum.
Engum blöðum er um það að fletta,
að sameiningarraddir vinstrimanna eru
enn kæfðar af hobbýkommum, sérgæzku-
fullum prumphænsnum sem lifa á verka-
lýðnum. Því lengur sem dregst að sparka
þessum óteljandi hálfforingjadruslum út
í hafsauga, því lengur sem verkalýðurinn
verður að burðast með röflandi foringja-
blækur áhugalausar um einingu — því
að þeir fitna og þrífast sjálfir einungis
á sundruðum verkalýð, pólitísk tilvera
þeirra er beinlínis sundraður verkalýð-
ur — að sama skapi minnka líkur þess að
verkamaðurinn fái sanngjörn daglaun.
Það er smánarblettur að láta verðleika-
lítið skrifstofubákn skríða upp á bakið
á verkalýðnum og sjúga sig þar fast, og
horfa síðan á þetta skrifstofubákn geta
af sér óteljandi hobbýkomma, snatt-
menni og kontórista undir því yfirskini að
verið sé að vinna að málefnum verka-
lýðsins meðan verkamaðurinn sjálfur
hefur ekki raunhæfari daglaun. 4
Unnur S. Bragadóttir:
TVÖ LJÓÐ
ALLTAF SVONA
„Vondur maður,“
tautaði hún
og vatnið rann yfir gólfið.
Alltaf svona dag eftir dag,
rangt orð é röngum stað
og regndroparnir
sem tærir margfalda Ijósadýrðina.
Gríðarstór heimur,
fullur af innihaldslausu lífi
og mótmælendum hinnar sönnu náttúru.
NÚ
Nú er það ekki lengur amma,
sem elur börnin,
nú er framtíðin okkar eigin — eða hvað?
„Andrés, aldrei gerðum við þetta þegar við
vorum ungir."
Herbergi fullt af reyk
og þreytuleg augun.
Af hverju alltaf þetta andskotans nöldur?
„Hann er orðinn drykkfelldur drengurinn."
„Viltu meira í bollann?"
„Ó, nei, ég verð víst að hafa mig heim og elda.“
En þrátt fyrir mótmælin,
aftur í bollann, aftur, aftur og aftur.
Já, það er skelfilegt að vita
hve miklum áhyggjum hann veldur nábúunum,
þessi drykkfelldi drengur. —
Að þeir skuli ekki krossfesta sig fyrir hann.
J. E. Haraldsson, Lambi:
KÚRISTINN
Lesa, lesa.
Liggja í rúml.
Láta sig dreyma í næturhúmi.
Safna vizku, vizku safna
vita eigin dómgreind dafna,
á sig engu öðru næra.
Læra.
Lesa, lesa.
Læra melra.
Látast ekkert annað heyra.
Ekkert éta.
Ekkert geta.
En muna að í vizku er Z
Námið meta.
Lesa, lesa.
Læra á daginn.
Þótt léttist við það kannski maginn.
Heilann þroska, þroska heilann.
Það er veilan.
Leikfiminni sjaldan sinna.
Sundið iðka þeim mun minna.
Aldrei vlnna.
Lesa, lesa.
Læra á kvöldin.
Láta æðið taka völdin.
Verða fyrir veilu flárri.
Verða að missa af einkunn hárri.
Verða aldrei skiárri.
Vizkukeppur
vizkan skreppur
KLEPPUR.
46