Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1963, Page 70

Andvari - 01.10.1963, Page 70
188 VAGN B0RGE ANDVARl upphafi þáttarins. Hér höfum við enn einn af hinum snjöllu listgripum höf- undarins, börnin eru aftur látin koma fram á sviðinu. Ast Höddu til harnanna gerir hana enn þá geðþekkari. Og sak- leysi harnanna, skortur skilnings á því, sem gerist innra með henni, skapar sterkar andstæður við hugarvilið og sorg- ina í sál hennar, sem mikil leikkona verð- ur að gefa líf með látbragðslist sinni. Seinasti þáttur leikritsins er mjög erf- iður í meðförum á leiksviðinu, því áhorf- cndur eiga að geta skynjað rúmið, dýpt gilsins og hina miklu víðáttu náttúrunnar, þar sem mennirnir verða að smáverum. Ilver veit ncma einhverntíma seinna muni kvikmyndinni takast bctur að sýna dauða Höddu Pöddu hcldur en leikhúsið getur gert. Kvikmyndatilraunir hafa verið gerðar, cn þær geta varla talizt annað en fálm. Það, sem fest er á blað, hin bók- menntalega hlið fjórða þáttar og hitt, sem verður að fást fram jafnt á sviði sem í kvikmynd, er hvorki mcira né minna en sálfræðileg — dramatísk rakning örlaga- þráðanna. Bæði áhorfendur og leikendur (en Kristrún er úr sögunni, því í lífi Ing- ólfs er hún aðeins vísirinn á villigötuna og sjálf neikvæð persóna, lostgjarn vald- ur að allri óhamingjunni) standa augliti til auglitis við lífshættuna, sköp og dauða. En í leikhúsinu heyrum við aðeins og sjáum í huga okkar Höddu á hinni hættu- miklu leið hennar upp og niður gilið, þar til að því kcmur að hún sker á reipið. Á kvikmynd væri liægt að sýna livað gcrist í gilinu. Já, og ýmislegt fleira sem samtal Kamhans lciðir hugann að. At- riðin cru stórkostleg dramatísk skilnaðar- kveðja til lífsins og ástarinnar, til alls. Áður cn Iladda sígur niður fara cftir- farandi orðaskipti á milli þeirra: „Ingólfur: Vcrtu nú ekki svona þrálát, I Irafnhildur. Hadda Padda: (lágt). Því kallarðu mig ekki lengur mínu fallega nafni? Við er- um engir óvinir. Lofaðu mér því að kalla mig alltaf hér eftir Höddu Pöddu. í dag þegar ég fer, þegar ég stíg á lrak og hleypi úr lilaði, veifaðu þá til mín hattinum og segðu: Vertu sæl, Hadda Padda." Með þessum orðum Höddu Pöddu sýn- ir Kamban hversu mikill leikritahöfund- ur hann er. Áhorfendur og Höddu sjálfa, en minnst Ingólf, grunar hið óhugnanlega sem á bak við þessa kveðju liggur, og sé hlutverkið leikið sem vera skyldi, þá mun- um við skynja skjálftann, óttann og óró- ann, sem Ingólfur minnist líka síðar. Hann veit ekki, að það cr óttinn við enda- lokin í harmleik þeirra beggja, að nú hafi kóngssonurinn hæft fjöreggið og dauðinn sé á næsta leiti. Hann skilur ekki hversu hæpið tafl stúlkan, sem hann sveik, leikur núna, á þessurn óhugnanlega stað þar sem kaldir klettafingur gilsins teygjast upp í loftið. Þegar áherzla er lögð á hið kvikmvnda- lega í tækni Kambans, þá er þar með tekin til greina sú staðreynd, að gilið er lifandi mcðleikandi persóna, eins og drek- inn í hinu gamla miðaldaleikriti, lifandi persóna, sem er tilbúin að gleypa I Iöddu og fjötrar hug Ingólfs þannig, að hann mun vart síðar njóta hamingjunnar. Því er nauðsynlegt að við sjáum steinfingur gilsins. Vissulega má líka fá það fram á sviðinu. „Ingólfur: Ég bið þig einu sinni enn að hætta við að síga. Hadda Padda: Ertu hræddur um þú missir mig? Ingólfur: Þú gctur sparað háðsvrðin. Hadda Padda: Það eru engin háðsyrði. Það er ég sjálf scm er hrædcl. Þú ert ckki eins sterkur eins og þú þykist, Ingólfur. Stcindór, haltu í bandið með honum. Ingólfur: Eg læt þig ekki gera gys að mér. Hadda Padda: Spyrntu fótunum i stall
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.