Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1963, Page 101

Andvari - 01.10.1963, Page 101
ANDVARI DANSKAR BÓKMENNTIR 1940—1960 219 með mönnunum, sem hefur gæzku og sjálfsfórn að fyrsta boðorði. Frægðarorð sitt sem rithöfundur tryggði H. C. Branner sér með tveimur snilldar- legum smásagnasöfnum, „Om lidt er vi horte“ (1939) og „To minutters stilhed" (1944). Þar finnum við frumhugmynd- irnar settar fram í meistaraverkum eins og Isaksen, Pengemagt, Iris og Hannibals træsko, og við þetta bætast svo margar frábærar mannlýsingar eins og til dæmis í Shagpiben, To minutters stilhed, Rpde heste i sneen og De blá undulater og mörgum öðrum. Stríðið og ekki sízt eftirstríðsárin allt að því lömuðu skáldið, svo sem sjá má í hinni þjáningarfullu smásögu Angst (1947, endurprentuð í „Bjergene", 1953). En undir lok fimmta tugs aldarinnar hafði Branner aftur náð fótfestu og endurheimt trú sína á styrk hinnar húmanísku lífs- skoðunar sinnar, sem nauðsynlegt var til áframhalds á rithöfundarbrautinni. Með skáldsögunni „RyttereiT, sem út kom árið 1949, hófst nýr áfangi á ferli hans, sem almennt er talinn merkasta bókmennta- framlag hins sjötta tugs aldarinnar. „Rytteren" er óvenjulega skýr, næstum eins og frumdrættir í sinni fastmótuðu uppbyggingu. Sagan gerist öll á einum degi og lýsir persónu, sem stödd er í húmanískri kreppu og hvernig sigrazt er á henni. Aðalpersónurnar eru tvær, lækn- irinn Clemens, sem er fulltrúi hinnar húmanísku hugsjónar, og ástmey hans Susanne, scm er holdi klætt rótleysi, ein- manakennd og níhilismi nútímans. Auk þess eru í sögunni tvær aukapersónur, sem önnur reynir að bæta sér upp ótta sinn og öryggisleysi með valdbeitingu, en lýtur í lægra haldi, en hin er fulltrúi hinnar geldu skynsemishyggju, sem krefst skilyrðislauss frelsis í hvívetna, úr því að ekki er liægt að rökstyðja neitt bann á hlutlægan hátt, en þetta sjónar- mið leiðir í óhemjugangi sínum rakleitt til algerðrar upplausnar. Loks er svo hinn eiginlegi valdbeitingarmaður sögunnar, hinn dauði reiðmaður, tamningameistar- inn Húbert, sem raunar hefur að nokkru leyti vald yfir umhverfi sínu, en hvata- sálfræði hans dugar þó ekki til, þar sem dráp hans er einmitt afleiðing af frelsis- kenningum þeim, er hann aðhyllist. Á milli allra þessara persóna sveiflast Su- sanne. Hún vill ekki meðtaka húmanisma læknisins og reynir í lengstu lög að kom- ast undan því. Efnisþráður sögunnar er þá sá, að hún, í leit sinni að tilgangi, leit- ar til áðurnefndra aukapersóna, en kemst jafnan að fánýti lífsskoðana þeirra. í ör- væntingu reynir hún að fremja sjálfsmorð til þess að komast fram hjá Clemens, en honum tekst að bjarga henni. Nú hefur hún reynt kreppuna frá upphafi til cnda og getur nú loksins gefið sig húmanisma hans á vald. — Clemens er ef til vil! eitt- hvert skýrasta dæmið meðal margra veikra manna hjá Branner, sem finna sig með- seka í allri ógæfu, en hafa lært að snúa þessum veikleika sínum til góðs, þar sem hann gengur ætíð til liðs við gæzkuna, án þess að hugsa andartak um eiginn ávinning. Þessi markmiðslausa gæzka gerir hann nógu sterkan til að sigra bæði vald- beitingarmanninn, níhilistann og skyn- semishyggjumanninn. Grundvallarhugs- un bókarinnar er þá sú, að mannlega veru megi aldrei nota sem tæki, heldur skuli ætíð litið á hana sem takmark. Sá sem skilur þetta til hlítar, hcfur sigrazt á kreppunni í leit sinni að tilgangi lífsins. Segja má, að enn sé eitthvað frum- dráttalegt við „Rytteren", en Branner nær langtum meiri skáldlegri fyllingu í leikritinu „Súskende" (1951), sem er eina lífvænlega danska lcikritið frá áratugn- um. Aðalpersóna leikritsins sést aldrci á sviðinu. Það er dómari, sem lifað hefur einmanalegu lifi en stranglega rökréttu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.