Andvari - 01.01.1993, Qupperneq 19
ANDVARI
PÁLMI JÓNSSON
17
var dóttir Eiríks Eiríkssonar, bónda á Vatni á Höfðaströnd og víðar,
Þorsteinssonar. Kona Eiríks og móðir Helgu var Sigríður Pétursdóttir.12
Pálmi var mjög hændur að móðurömmu sinni og fóstru, Stefaníu
Olafsdóttur, sem varð háöldruð; hún lést árið 1974. Þau voru átrún-
aðargoð hvort annars; fram á fullorðinsár taldi Pálmi fóstru sína
kraftaverkamanneskju, sem kynni ráð við öllum vanda. Stefanía sá
ekki sólina fyrir Pálma. Eitt sinn fór hún til Reykjavíkur og sá þá
fleiri karlmenn en hún hafði áður séð á lífsleiðinni. „En enginn
þeirra komst nú í hálfkvist við hann Pálma minn,“ sagði hún, þegar
norður kom. Hafði hún óbilandi trú á fóstursyni sínum. Sigurlína,
dóttir hennar, lést árið 1986. Síðustu árin bjuggu þær mæðgur í íbúð
við Ásenda 14, sem þær keyptu skammt frá húsi Pálma við Ásenda 1
í Reykjavík. Sigurlína átti sex alsystkini og tvö hálfsystkini, og er
margt kunnra manna í þeirri ætt. Kristín, systir hennar, giftist Geir
Gunnari Gunnlaugssyni, bónda í Lundi í Kópavogi. Önnur systir Sig-
urlínu, Jórunn, giftist Pétri Jónssyni bifreiðarstjóra. Andrés, bróðir
Sigurlínu, sem ólst að mestu leyti upp á heimili hennar, enda nítján
árum yngri, fæddur 1917, var skírður í höfuðið á hálfbróður sínum.
Hann gekk menntaveginn, lauk prófi í íslenskum fræðum frá Há-
skóla Islands og var útvarpsstjóri 1968-1984. Er hann oft kallaður
Andrés Björnsson yngri til aðgreiningar frá hálfbróður sínum.
II.
Hof á Höfðaströnd var mikil jörð, 80 hundruð að fornu mati. Hún
var hluti af landnámi Þórðar Bjarnarsonar, sem kallaður var Höfða-
Þórður.13 Á æskuárum Pálma Jónssonar var þar jafnan margt í heim-
ili, um 10-20 manns; þar dvöldust foreldrar beggja hjóna, Jóns og Sig-
urlínu, börn og vinnufólk. Mikill gestagangur var á bænum, enda var
Jón bóndi oddviti og mikill félagsmálafrömuður. „Þetta er eins og
hótel í þjóðbraut,“ sagði Pálmi einu sinni við systur sína, og fannst
honum nóg um.14 Mest var um 200 fjár á bænum, en hross voru oftast
í kringum 20. Jón bóndi Jónsson var mikill hestamaður eins og faðir
hans, bræður og frændur. Bærinn var prýðilega hýstur á mælikvarða
þeirrar tíðar. Jón bóndi og fjölskylda hans bjuggu í járnklæddu, tví-
lyftu timburhúsi, sem reist hafði verið árið 1908. Heldur voru veður
hörð á vetrum á þessum slóðum og snjóþungt. Hof stendur sem næst
2 Andvari