Andvari - 01.01.1993, Qupperneq 21
ANDVARI
PÁLMI JÓNSSON
19
son að orði, „að Pálmi tók Hagafjallið undan, þegar hann seldi Hof
að lokum. Hof átti í honum sterkar taugar. Héðan hafði hann ungur
horft yfir Hofstorfuna, sem breiddi úr sér fyrir neðan.“ Sólveig, tví-
burasystir Pálma, segir: „Við krakkarnir lékum okkur oftast með
hornum, leggjum og skeljum, eins og sveitakrakka er siður, en Pálmi
kom með alls konar hluti, sem hann sagði, að væru flugvélar, og
renndi þeim með miklum hávaða um loftið. Hann var alltaf hug-
fanginn af vélum og nýrri tækni. Hann var enginn sveitamaður í
sér.“16 Frá blautu barnsbeini var Pálmi að velta fyrir sér nýjungum,
grufla í hlutum og grúska. Einu sinni sagði hann alvarlegur í bragði
við Sólveigu: „Þú veist ekki, hvað ég þarf að hugsa mikið!“ Pálmi var
að sögn systur sinnar tápmikill, en fremur baldinn, þegar hann var
barn og unglingur, en þær móðir hans og amma létu allt eftir honum.
Eitt sinn voru þau systkin að ganga með ömmu sinni, Stefaníu, út á
engi til að færa fólki mat. Pálmi ýtti þá við Sólveigu, svo að hún hras-
aði. Þá sagði amma hans: „Hann gerði þetta óvart. Þú veist, að hann
á hringhöndina!“ Stefanía bar hring á hægri hendi og kallaði hana
því hringhöndina, og var hún vön að leiða Pálma með þeirri hendi.
„Ég gat ekki óskað mér betri bróður. Ég var alltaf stolt af honum;
mér fannst hann svo gáfaður, og hann var líka svo sterkur og stór,“
segir Sólveig.
Pálmi stundaði fyrst nám í barnaskóla á Hofsósi, síðan í héraðs-
skólanum í Reykholti í eitt ár, þangað til hann settist í Menntaskól-
ann í Reykjavík haustið 1938. Pálmi var bráðger með afbrigðum og
námsmaður ágætur. „Faðir hans var mikill pólitíkus og kunningi föð-
ur míns. Pálmi var ekki mjög pólitískur, þó gekk hann í félag ungra
framsóknarmanna í sveitinni um skeið, en tók lítinn þátt í starfi þess
sem og öðru félagslífi. Það var prýðilegt að tala við Pálma í fámenni,
og þá gat hann verið kátur,“ segir sveitungi hans, Magnús Gíslason
frá Frostastöðum. „En í fjölmenni hafði hann tilhneigingu til að ein-
angra sig. Það held ég, að hann hafi haft úr föðurætt sinni eins og
fleira. í þeirri ætt gætti mikils áhuga á viðskiptum og því að vera öðr-
um óháðir efnahagslega.“17
Á menntaskólaárum sínum í Reykjavík bjó Pálmi fyrst hjá Pálma
Hannessyni rektor, frænda sínum, en síðar hjá móðursystrum sínum,
Jórunni Björnsdóttur á Þjórsárgötu 3 í Skerjafirði og Sigurlaugu
Björnsdóttur á Sólvallagötu 41. „Pálmi var léttlyndur og kátur piltur.
Hann var stríðinn, gerði þó sjaldnast fólk sárt,“ segja frændsystkin