Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1993, Side 83

Andvari - 01.01.1993, Side 83
ANDVARI EVRÓPUBANDALAGIÐ 81 nefnd fjórfrelsi EB. í aðildarríkjum EB skal einnig ríkja frjáls og óheft samkeppni og bann við mismunun á grundvelli þjóðernis. Þetta síðast nefnda merkir til að mynda að Danir geta ekki látið danska verkamenn eða dönsk fyrirtæki sitja að verkefnum í Danmörku og hafa franskir verkamenn og frönsk fyrirtæki þar sama rétt. Er frægt málið þegar franskt fyrirtæki fékk hnekkt útboði danska ríkisins við byggingu brúarinn- ar yfír Stórabelti árið 1990. Endanlegt markmið með stofnun EB er að koma á fót sameinuðu ríki Evrópu. Þykjast menn geta lesið það þegar úr orðum Rómarsáttmálans. í einingarlögum Evrópu (Single European Act), sem undirrituð voru hinn 17. febrúar 1986 og eru viðauki við Rómarsáttmálann, var því síðan lýst yfir að aðildarríki EB stefndu með aukinni samvinnu sinni að því að koma á fót Evrópusambandi - European Union - án þess ljóst sé hvað í þessum orðum felst. Ljóst virðist þó að um sé að ræða sambandsríki eða pólitíska ríkis- heild - political union, politisk union eins og menn segja á ensku og dönsku ~ án þess þó að samband þetta sé skilgreint frekar. En Evrópusamband framtíðarinnar mun að minnsta kosti hafa sömu eða svipaðar stofnanir og EB hefur nú: sameiginlegt löggjafarþing, ríkisstjórn (framkvæmdastjórn), sameiginlegan dómstól (hæstarétt), ríkisbanka og sameiginlegan gjaldmiðil °g ríkisfána og sameiginlegan þjóðsöng. Sameinuð Evrópa Lengi hafa menn látið sig dreyma um sameinaða Evrópu enda þótt hug- myndirnar sem að baki hafa búið væru ólíkar um margt og af misjöfnum f°ga. Sagt er að Napóleon mikli [1769-1821], Bismarck [1815-1898] og Adolf Hitler [1899-1945] hafi allir alið í brjósti draum um sameinaða Evrópu enda þótt ólíku sé saman að jafna. Sir Winston Churchill [1874-1965] nefndi í raeðu, er hann hélt hinn 14. maí 1947 í Albert Hall í Lundúnum, að Evrópu- búar yrðu að hrinda af stað undirbúningi að stofnun bandaríkja Evrópu sem komandi kynslóðir yrðu síðan að móta. Lengi virtust stjórnmálamenn í Evrópu þó ekki gera sér ljóst að hverju stefnt var með EB. Til að mynda virðast breskir stjórnmálamenn ekki hafa gert sér Ijóst að hverju stefndi. í hvítbók bresku stjórnarinnar frá því í júlí 1971 stendur m.a. að Efnahagsbandalag Evrópu sé ekki sambandsríki og ekki sé að því stefnt með stofnun bandalagsins að svipta nokkurt ríki neinu af fullveldi sínu. í ræðu, sem Edward Heath [f. 1916], forsætisráðherra Ereta, hélt í þinginu 25. febrúar 1970, sagði hann m.a.: í*að eru engar áætlanir um sambandsríki Evrópu - og það sem meira er: Peir forystu- ^ Andvari
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.