Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1993, Page 137

Andvari - 01.01.1993, Page 137
ANDVARI í LEIT AÐ EILÍFUM SANNINDUM 135 vantrúar, sem ræður vexti eða visnun, leiðir til lífs eða dauða. Slík er kenningin: kenning, sem grundvallast á að í norrænum hugarheimi voru örlögin óslitinn dóms- dagur í sálu mannsins, skapi og blóði: sjálfsdómur, er úr djúpum vitundar einstakl- ingsins færir heildinni þrotlaust, færir öllu mannkyni fulla vitneskju, án undandráttar jafnvel leyndustu raka . . . Þarna var og er spurt í djúpin og svarið óbrigðult.8 Örlögin eru þarna ekki skýrð sem utanaðkomandi afl sem ráðskast með líf einstaklingsins og gerir hann að leiksoppi, heldur er litið á þau sem ein- hvern kraft er á sér djúpar rætur í sálarlífi og vitund mannsins og ræður þeirri stefnu sem hann markar með lífi sínu leynt og Ijóst. Og Gunnar teng- ir ennfremur hið forna orð „sköp“ bæði við það sem orðið skap nær yfir, þ.e. þau öfl sem ráða í undirdjúpum hugans og stjórna athöfnum og fram- vindu lífsins, og einnig við orðið sköpun: Sköpun er - á því villast flestir - aldrei aðeins uppfitjunin ein, heldur jöfnum höndum og þó miklu fremur áframhaldið; það, sem er að gerast; - það sem vér á hverri stundu höfum handa á milli. Þessvegna er þáttur hvers einstaks svo viðurhlutamikill. Enginn veit hvenær einmitt það, sem hann eða hún aðhefst ræður sköpum - langt framyfir það, sem einstaklingurinn eða umhverfi hans megna að yfirlíta. - Af slíkri alvöru litu menn eitt sinn á tilveruna hér nyrðra. Svo göfug og um leið óbrotin, og þó samtímis víðfeðm var norræn lífsskoðun. 9 í sögulegum skáldsögum sínum hefur Gunnar gert þessari lífsskoðun, sem hann kallar norræna og jafnframt er lífsskoðun hans sjálfs, rækileg skil og sýnt fram á hvaða aðgerðir einstaklinga réðu sköpum, örlögum íslensku þjóðarinnar á miklum mótunar- og umbrotatímum í sögu hennar, með þeirri yfirsýn og þeirri túlkun sem lífsskilningur hans sjálfs er fær um að gefa. Gunnar setur ávallt einstaklinginn í þungamiðju atburðanna og það er afstaða hans sem ræður úrslitum. Þannig eru trúskiptin og átökin í kringum þau í Hvítakristi aðeins að nokkru leyti skýrð sem afskipti erlends kúgun- arvalds. Meginátökin eiga sér ekki stað á Alþingi árið 1000, eins og búast mætti við, því hið raunverulega uppgjör milli heiðni og kristni fer fram innra með aðalpersónum sögunnar, þeim Svertingi Runúlfssyni og föður hans Runúlfi í Dal og þeir komast að lokum að sameiginlegri niðurstöðu.* * í þessu samhengi er freistandi að benda á til samanburðar hvað Gerpla Halldórs Laxness, sem gerist á sama tíma og Hvítikristur, birtir gjörólíka sögusýn, þar sem hulunni er svipt af þeirri blekkingu sem hvers kyns hugmyndakerfi búa yfir. Engu að síður má í þessum ólíku verkum finna sameiginlega þræði, ennfremur ef Jörð er höfð með í samanburðin- um. Eins og Hvítikristur birtir Gerpla sýn í marga ólíka heima en sýnir jafnframt djúp- stæðari átök milli ólíkra stétta, viðhorfa og árekstra mismunandi menningarheima. Og heiðin trú er þar sýnd sem sama villa og blekking og kristin. Þó er í Gerplu að finna griðastaði fegurðar og jafnvægis ekki ólíka jarðarsamfélagi Gunnars. Það er samfélag Núítanna og heimur þeirra Þórdísar og Þormóðs þar sem menn una glaðir við sitt og rækta garðinn sinn og heilbrigð skynsemi, ást og friður ríkir í samskiptum manna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.