Andvari - 01.01.2007, Blaðsíða 52
50
KRISTÍN ÁSTGEIRSDÓTTIR
ANDVARI
Landspítalasjóðurinn - sjóðurinn sem konur réðu yfir - var einmitt
tæmdur í þágu hennar.165
Málsvari kvenna og barna
Eins og áður segir bar barnalæknirinn Katrín hag barna mjög fyrir
brjósti. Hún beitti sér í umræðum um barna- og unglingavernd á sínu
fyrsta þingi þar sem hún benti á nauðsyn þess að koma upp athugunar-
stöð og hæli fyrir börn sem voru andlega eða líkamlega miður sín, eins
og hún orðaði það, en svipuð mál bar Guðrún Lárusdóttir margsinnis
fram. Þá fannst Katrínu sumir þingmenn ekki gera sér grein fyrir því
hve nauðsynlegt væri að vald barnaverndarnefnda væri skýrt og skor-
inort. Sum börn yrðu að njóta verndar vegna slæmrar meðferðar for-
eldra sinna. Katrín átti sæti í barnaverndarnefnd Reykjavíkur í nokkur
ár og vissi því alveg um hvað hún var að tala.166
A þinginu 1946 flutti Katrín afar athyglisvert frumvarp um dagheim-
ili fyrir börn. Þar var að finna hugmyndir sem urðu ekki að veruleika
fyrr en mörgum áratugum síðar. Samkvæmt því átti ríkið að greiða
tvo fimmtu hluta stofnkostnaðar en bæjar- og sveitarfélög þrjá fimmtu.
Frumvarpinu fylgdi sú áætlun að í Reykjavík yrðu byggð tvö dagheimili
og eitt úti á landi á ári, þar til þörfinni hefði verið að fullu sinnt. Katrín
vildi tryggja börnum öruggt athvarf og gott uppeldi en mikið skorti á
það að hennar dómi. Hún sagði m.a.:
En nú er svo komið, að uppeldisskilyrði víða í kaupstöðum, en þó einkum hér
í Reykjavík, eru orðin svo slæm, að með öllu er óviðunandi og ekki annað
sýnna en stefnt sé í voða, ef ekki er að gert. Og horfur eru á, að fremur muni
ástandið versna en batna, ef látið er skeika að sköpuðu ... Það er engu líkara
en alls ekki hafi verið búist við börnum í kaupstöðum landsins og því láðst að
búa að þeim á mannsæmandi og heilbrigðan hátt. Börnunum er, að því er best
verður séð, ofaukið bæði inni og úti. Má í því sambandi minnast á hinar örsmáu
íbúðir, þar sem öll fjölskyldan, stór eða smá, verður að kássast saman í einu til
tveim herbergjum eða kannske þremur, ef vel lætur. Mjög víða er andrúmsloft
algerlega ófullnægjandi handa svo mörgum mönnum, og ekki er alls staðar séð
fyrir nægri birtu. Um rúm eða afdrep til leikja fyrir börnin er ekki að ræða,
nema kannske helst í dragsúg á dimmum göngum eða tröppum.167
Lýsing Katrínar er ófögur enda var húsnæðisvandinn í Reykjavík
himinhrópandi og bjuggu hundruð manna í misgóðum bröggum sem