Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2007, Blaðsíða 86

Andvari - 01.01.2007, Blaðsíða 86
84 BIRNA BJARNADÓTTIR ANDVARI Ævintírið af Eggjerti glóa, eða önnur slík, held jeg ... sjeu til lítils handa flestum Islendíngum, þeír hafa trauðlega mikinn gáning á, og því síður gagn af, þeim. Að minnsta kosti hef jeg heírt marga ámæla, og hafa óbeit á, þesskonar skröksögum, sem þeír vita ekki þíðínguna í. Snotur kvæði, sennilega sögur og þvíumlíkt, held jeg væru betur við alþíðu gjeð, og gjörðu meíri not.24 Ævintýrið var einnig metið sem hégilja og andlega voluð kellingabók,25 en eins og Páll Valsson hefur bent á, eru kellingafrásögur væntanlega íslenskar þjóðsögur og ævintýri sem enn voru varðveitt í munnlegri geymd á þessum tíma, ekki síst meðal kvenna.26 Tómas Sæmundsson fagnar hins vegar Eggerti Glóa og biður um meira efni af slíku tagi, hann sem sumir samtímabók- menntafræðingar telja helsta upplýsingarmanninn í hópi Fjölnismanna.27 En hvað sögðu þýðendurnir, Jónas og Konráð, sér til varnar? í Fjölni skrifa þeir eftirfarandi: Það er undarlegt, að so mörgum Íslendíngum þikir lítið koma til sögunnar af Eggjerti glóa. Því verður ekki komið við í þetta sinn að sína, hvað snilldarlega hún er samin og í hvurju fegurð hennar er fólgin; enn óskandi væri, eínhvur Islendíngur irði til að semja eítthvurt ævintíri, sem ekki væri lakara; því þá væri nóg að snúa því á önnur mál, til þess að allar þjóðir í Norðurálfunni segðu við sjálfar sig: „það er óhætt að telja þennan Íslendíng með bestu skáldum á þessari öld!“28 í fjórða ári Fjölnis, árið 1838, birtist síðan ítarleg vörn fyrir ævintýrið, róman- tíska skáldskaparfræði og ímyndunaraflið. Þeir telja að Islendingar hafi hvorki þroska né skilning til að meta list Tiecks. Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal hefði verið maður til að taka undir slíkt sjónarmið og líta jafnvel á það sem raunsæi, en á hann hefur ekki alltaf verið hlustað á Islandi.29 Ef marka má fáein brot úr sögu fagurfræðinnar á íslandi hafa fleiri tjáð sig um sérstæðan „tíma“ íslands eða „stöðu“ í málum skáldskapar, fagurfræði og lista, stundum við lítinn fögnuð.30 Mesta snilldin, skrifa þeir Jónas og Konráð, felst í því hvað prýðilega hefur tekist að leiða fyrir sjónir það sem var aðaltilgangur skáldsins, hvað af sindinni gjetur leítt, stundum eptir lángan tíma; hvursu tilhneígíngarnar fara að koma manninum til að ifirgjefa götu sannleikans, ef þeím er leíft að komast upp í huga mannsins; hvursu eína sindina leíðir af annarri, enn samvizkan breítir máli sínu eíns og fuglinn, að því skapi sem sakleísið er varðveítt, eður því er tínt, og steípir þeim í skelfíng og óhamíngju, er ránglega hefir breítt; og hvursu hegndin að lokunum dinur ifir vægðarlaust. Trauðla mun nokkur sú andleg ræða til, er þessi almennu sannindi sjeu sett fyrir sjónir almennilegar og tilfinnanlegar, en í þessu ævintíri; ... 31 Á síðari tímum hafa fáeinir fjallað um ævintýrið.32 Páll Valsson fjallar um það og viðtökurnar á íslandi í kafla um tímaritið Fjölni í bók sinni um Jónas. „Að Jónas skuli þýða þessa sögu sýnir ljóslega að smekkur hans lá nálægt hinum þýska, rómantíska skóla og að þeir Konráð fylgdust vel með“, skrifar Páll. Og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.