Andvari - 01.01.2007, Blaðsíða 57
andvari
KATRÍN THORODDSEN
55
Með stjórn landsins fara á örlagatímum ótrúir menn og dyggðasnauðir,
lítilsigldir og illviljaðir, hugdeigir og hæfileikasnauðir erindrekar erlends
valds, ef dæma skal eftir afleiðingum gerða þeirra og afrekum á öllum
sviðum stjórnmálanna, bæði innanlands og utan, og þótt ill sé óstjórnin í
innanlandsmálum, er þó hitt miklu örlagaríkara, hvernig haldið hefur verið á
utanríkismálum, sjálfstæðismálunum, á undanförnum árum og er enn.181
Þarna er á ferðinni sama orðræða og áður: Svik og fjörráð við þjóðina.
Það var verið að fórna nýfengnu sjálfstæði og gangast undir vald
versta auðvaldsríkis í heimi og það gekk algjörlega gegn hugsjónum
sósíalista og reyndar margra annarra, að sögn Katrínar. Hún var ekkert
að skafa utan af skoðunum sínum á þeim stjórnmálamönnum sem
hún kallaði „kvislinga“ síðar í ræðu sinni. Orð hennar endurspegla
þann mikla þunga sem fylgdi deilunni um aðildina að NATO og
síðar veru bandarísks hers eftir að hann kom aftur til landsins 1951.
Umræðan var í beinu framhaldi af beiðni um herstöðvar til 99 ára og
Keflavíkursamningnum, mál sem áttu eftir að kljúfa þjóðina næstu
áratugina. Tillagan um aðild íslands að NATO var samþykkt með
látum 30. mars 1949.182
Umræður um NATO-aðildina er einhver hatrammasta umræða sem
fram hefur farið á Alþingi íslendinga. Þar kom til harðra orðaskipta
sem og á fundum utan Alþingis. Á einum slíkum fundi komst Olafur
Thors þannig að orði um nokkra andstæðinga ályktunarinnar að þeir
hugðu á málaferli gegn Ólafi. Meðal þeirra sem Ólafur móðgaði var
Gylfi Þ. Gíslason þingmaður Alþýðuflokksins. Hann bar fram tillögu
um að þinghelgi yrði létt af Ólafi Thors þannig að hægt yrði að lög-
sækja hann. Á móti lögðu þeir Gunnar Thoroddsen og Finnur Jónsson
til að tillögunni yrði vísað frá þar sem ummælin hefðu fallið utan þings.
Harðar umræður urðu um tillöguna enda í tengslum við mikið deilumál.
Afar fátítt var að slík mál kæmu upp á Alþingi. Undir lok umræðunnar
drógu flutningsmenn frávísunartillöguna til baka og lýstu sjálfstæð-
ismenn því yfir að þeir myndu styðja tillöguna en stóðu reyndar ekki
allir við það. Ólafur vildi fara út í málaferli og verja sig.183 Þingmenn
sósíalista ákváðu hins vegar að greiða atkvæði gegn tillögunni og lýsti
Katrín Thoroddsen afstöðu flokksins er hún gerði grein fyrir atkvæði
sínu í nafnakalli. Hún sagði að hún teldi að Ólafur Thors hefði sett blett
a Alþingi með ummælum sínum, en þeir sem fyrir þeim urðu hefðu
vaxið í áliti. Hún sagði: