Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2007, Blaðsíða 120

Andvari - 01.01.2007, Blaðsíða 120
118 STEFÁN PÁLSSON ANDVARI af upphafssögu nútímasálfræði og er vísir að sögu íslenskrar sálfræði sér- staklega. Hætt er við að lesandi sem kynna vill sér störf landsbókavarðarins Guð- mundar Finnbogasonar, en þeirri stöðu gegndi hann um tveggja áratuga skeið, eða áhrif hans á íslenska menningarumræðu, m.a. sem ritstjóra Skírnis, verði fyrir vonbrigðum. Segja má að frásögninni ljúki þegar ákveðið var á sparn- aðarþinginu 1924 að leggja niður stöðu háskólaprófessors í hagnýtri sálfræði, sem Guðmundur hafði gegnt. Þetta er raunar í góðu samræmi við titil bók- arinnar, henni er jú ætlað að fjalla um sálfræðinginn Guðmund Finnbogason en ekki önnur þau hlutverk sem hann gegndi á lífsleiðinni. Frá sjónarhorni höfundarins er augljóst hagræði fólgið í því að taka með þessum hætti einn hluta lífsstarfs sögupersónu sinnar út fyrir sviga og fjalla um hann sérstaklega. Sú spurning vaknar hins vegar hvort slíkt sé yfirleitt gerlegt? Mótast heimsmynd vísindamannsins ekki einmitt af öllum þeim ólíku viðfangsefnum sem hann tekst á við í störfum sínum? Sú er a.m.k. niðurstaða þeirra vísindasagnfræðinga sem hafa á síðustu árum fjallað um störf helstu spekinga vísindabyltingarinnar. Lengi vel ein- blíndu sagnfræðingar á þá þætti vísindastarfs þeirra sem best hafði staðist tímans tönn, en sópuðu daðri við dulhyggju og gullgerðarlist undir teppið. í dag munu flestir sammála um að vísindastörf manna á borð við Kepler, Galíleó og Newton verði ekki skilin til hlítar nema í samhengi við t.d. hug- myndir þeirra um guðspeki. Guðmundur Finnbogason hóf nám við Kaupmannahafnarháskóla haustið 1896 og hugðist leggja fyrir sig heimspeki og fagurfræði. Fljótlega fangaði ung og ört vaxandi undirgrein heimspekinnar hug hans. Það var sálfræð- in. Ymsir þættir stuðluðu að framsókn sálfræðinnar á seinni hluta nítjándu aldar og munaði þar mikið um tilkomu tilraunastofuvísinda, en farið var að setja upp rannsóknarstofur í sálfræði við ýmsar menntastofnanir í Evrópu. Markmiðið með tilraununum var oftar en ekki að mæla með kerfisbundnum hætti ýmsa þætti mannlegrar skynjunar og virkni skynfæranna sjálfra. Um aldamótin 1900 var sálfræðin í sjálfstæðisbaráttu sem fræðigrein. Sögulega séð heyrði hún undir heimspekina (og gerir raunar enn í huga bókasafnsfræðinga, ef marka má Dewey-flokkunarkerfið). Uppgötvanir á sviði lífeðlisfræði, s.s. varðandi flutning taugaboða og tengsl líkams- og heilastarfsemi, gáfu vonir um að svör við ýmsum grundvallarspurningum heimspekinnar um eðli mannlegrar hugsunar væru innan seilingar. Bjartsýni þessara ára á mátt raunvísindanna til að komast til botns í mannshuganum og að skilja til hlítar hina illskilgreindu „sál“ kom meðal annars fram í miklum áhuga á iðkun vísindalegs spíritisma. Skipbrot spíritismans sem vísindagreinar á tuttugustu öld hefur leitt til þess að margir vilja sópa honum undir teppið þegar kemur að vísindasögunni og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.