Andvari - 01.01.1956, Blaðsíða 10
6
Guðmundur Gíslason Hagalín
ANDVARI
Bakkakoti í Kelduhverfi, laðir Benedikts skólastjóra og rithöf-
undar í Húsavík, sem skrifaði sögur undir dulnefninu Björn
austræni.
Kristjana, móðir Benedikts, var dóttir Sigurðar bónda á Hálsi
í Kinn, Kristjánssonar umboðsmanns og bónda á Illugastoðum í
Fnjóskadal, jónssonar hins fróða, bónda og barnakarls á Veisu
í Fnjóskadal, Ivolbeinssonar hreppstjóra á Arnarvatni í Mývatns-
sveit, Sigmundssonar hreppstjóra þar, Kolbeinssonar. Kristján á
Illugastöðum átti tólf börn, sjö syni og fimm dætur. Voru synir
bans almennt kallaðir Illugastaðabræður. Meðal þeirra voru, auk
Sigurðar bónda á Hálsi, Björn breppstjóri á Þverá, föðurfaðir
Tómasar FI. Johnsons ráðberra í Kanada, Kristján bæjarfógeti í
Reykjavík og síðar amtmaður, Jón prestur á Þóroddsstað og síðar
á Breiðabólstað í Vesturhópi, og Benedikt prófastur í Múla. Voru
þeir allir alþingismenn Kristján, Jón og Benedikt. Hafði það
ekki komið fyrir áður, að þrír bræður sætu á Alþingi, og aðeins
einu sinni hefur það átt sér stað síðan, þar sem voru þeir Gaut-
landabræður, Kristján, Pétur og Steingrímur Jónssynir. Sigurður
bóndi á Flálsi var kvæntur Margrétu Indriðadóttur bónda í Garði
í Fnjóskadal, Arasonar bónda þar, Jónssonar. Þau bjón voru
fremur fátæk, lengst síns búskapar, en Sigurður var mjög greindur
maður og bið rnesta valmenni, og Margrét húsfreyja þótti einstök
kona, jafnt að gæðum og skörungsskap.
Er auðsætt af þessari stuttu ættfærslu, að Benedikt Sveins-
son átti til frændsemi að telja við margt hið gáfaðasta og merk-
asta fólk í Þingeyjarþingi.
Sveinn Magnússon ólst upp á Víkingavatni í Keldubverfi til
fullorðinsára og tók af því kenningamafn sitt. Hann nam tvö
ár söðlasmíði bjá Jóni bónda Benediktssyni á Stóruvöllum í
Bárðardal og lauk sveinsprófi í þeirri iðn. Að því loknu fór hann
utan til frekara náms í iðn sinni, dvaldist einn vetur í Kaup-
mannahöfn.
Stóruvallaheimilið var alkunnugt fyrir myndarskap og dugn-
að húsbændanna. Þar kynntist Sveinn fyrst Kristjönu Sigurðar-