Andvari - 01.01.1956, Blaðsíða 105
andvari
í varplandi.
Eltir Bergsvein Skúlason.
Löngu áður en ísland byggðist af mönnum, eða um það •
bil sem það fékk sína núverandi mynd, hefur æÖarfuglinn numið
hér land, ásamt öðrum norrænum láðs og lagar dýrum. Flest
halda velli enn í dag. Nokkur hafa þó helzt úr lestinni vegna
skammsýni manna og ónærgætni og verða þau viðskipti ekki
rakin hér.
Hljóðlátur, hógvær og spakur hefur æðarfuglinn sveimað
nteðfram ströndum landsins um þúsundir ára, sumar og vetur, í
blíðu og stríðu. Nálgazt varpstöðvar sínar um eyjar og útnes
með lágværu kvaki og bendingum, þegar voraði, orpið og alið
upp unga sína á grunnum lónum og hlésælum vogum í sumar-
blíðunni. Síðan búizt við vetri eftir föngum.
Sjálfsagt hefur tilveran oftast verið honum bærileg og hann
unað glaður við sitt.
Og nú skulum við bregða okkur í varpland með fólki, sem
hefur umgengizt æðarfuglinn lengi, í héraði þar sem hann helur
notið friðar og umönnunar manna um hundruð ára, þó betur
hefði mátt vera á stundum; líta yfir lifnaðarhætti hans og sjá,
hver viðbrögð hann veitir, þegar við komum í ríki hans.
— Það er skammt liðið af óttu, en þó fullbjart sem um hádag
væri. Stórstraums-flæði er og því sjór uppi í hverjum vog og
vík, svo sjávarhátt, að gamlar þurrar þanghrannir frá haustinu
hafa tekið aftur gleði sína, eru komnar á flot og í tilhugalíf við