Andvari - 01.01.1956, Blaðsíða 82
78
Þorkell Jóhannesson
andvahi
föstum reglum, er snemma sköpuðust um slíkt.1) Tröppu neðar
standa svo búðsetumenn, eða þurrabúðarmenn. Búðsetumenn
höfðust við í verstöðvum eða í nánd við þær og lifðu á handafla
sínum, helzt fiskveiði, og svo lausavinnu ýmiss konar, en höfðu
oft engin jarðarafnot né kvikfjáreign. f fornum samþykktum var
mönnum reyndar bönnuð búðseta, nema þeir hefðu kvikfjáreign
nokkra, en af því, hversu oft bann þetta var ítrekað, má ráða,
að erfitt hafi gengið að fá því framfylgt.
Á íslandi er mikill fjöldi eyðibýla. Dr. Þorvaldur Thoroddsen
taldi, að þau myndu vera 3—4 þúsund alls.2) Að vísu hafa býli
þessi aldrei öll í byggð verið samtímis og ekkert nálægt því.
Þessar tölur bera því fremur vott um breyfingu byggðar í land-
inu en landauðn, sem orðið hafi. Jarðir og býli, sem kunnugt
er um, að eyðzt hafi af eldgosum, jökulhlaupum, sandfoki og
öðrum náttúrubyltingum, skipta ekki mörgum hundruðum. Til-
færsla og eyðing byggðarinnar fyrr og síðar verður því aðeins að
litlu leyti rakin til slíkra orsaka. Henni olli að nokkru fólksfækk-
un á ýmsum tímum, en þó öllu fremur breytingar á atvinnuhög-
um og háttum þjóðarinnar sjálfrar.
Allt fram á ofanverða 13. öld virðast litlar breytingar hafa
orðið á byggðinni frá því sem var um 1100 og fyrr var getið,
og er þá að vísu ekki tekið tillit til hjáleigubyggðarinnar, en
bún var sem fyrr greinir allmjög komin undir geðþótta og ástæð-
um landeiganda eða ábúanda jarðanna og því ekki alls kostar
háð almennum landshögum með sama hætti og bygging jarð-
anna yfirleitt. Á þessum tíma urðu svo sem engar breytingar á
atvinnuháttum, og mannfjöldi hélzt í hku horfi. Á öndverðri 14.
öld mun fólki heldur hafa fækkað í landinu vegna langvarandi
harðinda og nranntjóns af sóttum, er nú taka að gera vart við
sig meira en löngum áður, að því er heimildir herma. Frá þvi
um miðja 14. öld tekur svo útvegurinn að færast í aukana til
]) Þorkell Jóhannesson: Die Stellnng etc., hls. 106—20.
2) Þorvaldur Thoroddsen: Lýsing íslands, III. hd., bls. 19—22.