Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1956, Page 23

Andvari - 01.01.1956, Page 23
ANDVARI Benedikt Sveinsson 19 Landvarnarflokksins, að blaðamenn birtu ávarp til þjóðarinnar, þar sem þeir freistuðu að fylkja henni um ákveðna meginstefnu í hinu mikilvæga máli. Avarp þetta var birt í nóvembermánuði 1906, en stuttu síðar barst sú fregn frá Danmörku, að væntanleg samninganefnd Dana °g íslendinga mundi verða þannig skipuð, að í henni ættu sæti ellefu Danir, en aðeins sjö menn íslenzkir. Þetta vakti mikla oanægju meðal Landvarnannanna og þótti bera vitni um það, að enn væru Danir samir við sig, litu niður á íslendinga og vildu gera hlut þeirra sem auvirðilegastan. Nú var það krafa Landvamarmanna og fjölmargra annarra, að áður en Alþingi Lysi fulltrúa íslands í samninganefndina yrði þing rofið og efnt til nýrra kosninga, svo að þjóðinni gæfist kostur á að velja ser þingfulltrúa með tilliti til úrlausnar þess stónnáls, sem nú var á ný á döfinni. En þessu var tekið fjarri af liði stjórnarinnar. Landvarnarmenn beittu sér þá fyrir því, að ritstjórar þeir, sem Lirt höfðu ávarpið til þjóðarinnar, boðuðu fulltrúafund á Þing- velli við Öxará laugardaginn 29. júní 1907, og skyldi hlutverk lundarins vera ,,að láta uppi og lýsa yfir vilja þjóðarinnar í sjálf- stasðismáli hennar.“ Þetta fundarboð hlaut hinar beztu undirtektir. Mættu til lundarins á annað hundrað kjörinna fulltrúa úr öllum kaupstöð- um landsins og níutíu og níu hreppum, og var Benedikt Sveins- son kosinn á fundinn bæði af Barðstrendingum og Norður-Þing- eyingum. En auk fulltrúanna mætti á Þingvelli fjöldi annarra rnanna, sem brunnu af áhuga á gerðum fundarins. Fánamálið hafði, þegar hér var komið, verið um skeið mikið áhugaefni ýmissa Landvamarmanna og þá ekki sízt Einars Bene- diktssonar, sem lagt hafði til, að fáni íslands yrði hvítur kross í Fláum feldi. Haustið 1906 kaus Stúdentafélag Reykjavíkur nefnd til að gera tillögur um gerð íslenzks fána. í nefndina voru kosnir Benedikt Sveinsson, Bjarni Jónsson frá Vogi, Guðmundur Finn- Fogason, Magnús Einarsson dýralæknir og Matthías Þórðarson þjóðminjavörður. Nefndin skilaði fljótlega tillögum. Hún hafði
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.