Andvari - 01.01.1956, Qupperneq 34
30
Guðmundur Gíslason Hagalín
ANDVARI
meðal flutningsmanna frumvarps um sérfána fyrir ísland. Skyldi
sá fáni vera fullkominn siglinga- og þjóðfáni. Þótt vitað væri,
að konungur mundi alls ekki staðfesta lög um slíkan fána, náði
frumvarjrið samþykki neðri deildar Alþingis, en í efri deild dag-
aði það uppi. Málið lá svo um skeið í þagnargildi á Alþingi,
en hinir gömlu Landvamarmenn héldu áfram að vinna að fylgi
þess með þjóðinni.
Hinn 12. júní 1913 gerðist óvæntur og mikilvægur athurður.
Foringi danska varðskipsins, sem lá á Reykjavíkurhöfn, lét taka
íslenzkan fána af ungum manni, Einari Péturssyni, síðar stór-
kaupmanni. Hann var á skemmtisiglingu og hafði dregið blá-
hvíta fánann að hún.
Nú var þó íslendingum einu sinni nóg boðið. Danskir fánar
blöktu á allmörgum húsurn í Reykjavík þennan dag í virðingar-
skyni við varðskipið danska. En þegar fréttin barst af tiltæki
hins danska sjóliðsforingja, hurfu dönsku fánamir af skynd-
ingu — allir sem einn, og um kvöldið skar skólapiltur niður
fánann á sjálfu Stjómarráðshúsinu. Bláhvíti fáninn blakti nú
á hverri stöng, og börn veifuðu honum framan í hina dönsku
sjóliða á götum bæjarins. Þegar sjóliðsforinginn gekk á land,
stilltu menn svo til, að hann varð að lúta til þess að ganga gegn-
um „fánahlið", sem rnyndað hafði verið á Steinbryggjunni. Fjöl-
mennur mótmælafundur var haldinn urn kvöldið. Til hans höfðu
boðað þingmenn bæjarins, og lýstu þeir tilefni hans þannig:
,,Dönsku hervaldi var í morgim beitt í íslenzkri höfn."
Þessi atburður varð til þess, að fánamálið var á nýjan leik
flutt á Alþingi. Elin þjóðfræga þrenning Benedikt Sveinsson,
Bjarni frá Vogi og Skúli Thoroddsen \ ildi láta skora á stjórnina
að leggja fyrir Alþingi fmmvarp til laga unr íslenzkan siglinga-
fána, en aðrir smátækari ætluðu að láta sér nægja staðarfána.
Slíkan fána kallaði Bjarni frá Vogi „skattlandssvuntu." Fylgis-
menn staðarfánans fengu samþykkta breytingartillögu, sem þre-
menningarnir töldu lemstrun á aðaltillögunni, og var hin breytta
aðaltillaga síðan felld, meðal annars með atkvæðum flutnings-